KA náði í sinn fyrsta sigur á tímabilinu

KA fagnar Íslandsmeistaratitlinum eftir sigur í fjórða leik.

Langri keppnishelgi í Unbroken deild karla lauk með þremur leikjum í dag, sunnudag. KA náði að hefna fyrir tap gærdagsins þegar liðið mætti Hamri öðru sinni.

Líkt og í gær voru þrír leikir á dagskrá en dagurinn byrjaði í Laugardalshöll. Þróttur Reykjavík og Þróttur Fjarðabyggð mættust eftir að hafa spilað fimm hrinur í gær. Þar höfðu gestirnir betur en heimamenn byrjuðu vel í dag. Þróttur R vann fyrstu og aðra hrinu báðar naumlega og leiddi því 2-0 en gestirnir að austan gáfust ekki upp. Þróttur Fjarðabyggð vann þriðju hrinu eftir upphækkun og fjórðu hrinu sannfærandi. Því var leikin oddahrina líkt og í gær og aftur vann Þróttur Fjarðabyggð eftir æsispennu. Þróttur Fjarðabyggð vann því báða leiki helgarinnar 2-3 og sótti fjögur mikilvæg stig.

HK og Vestri áttust við í Digranesi en Vestri vann leik gærdagsins 1-3. Ísfirðingar völtuðu yfir heimamenn í fyrstu hrinu en HK unnu aðra hrinu eftir nokkra spennu. Aftur vann Vestri þægilegan sigur í þriðju hrinunni og í þeirri fjórðu unnu þeir sannfærandi. Vestri náði góðu forskoti í fjórðu hrinunni sem HK náði ekki að minnka af viti. Vestri vann þar með 1-3 líkt og í gær sem lyftir þeim í 2. sæti deildarinnar.

Þriðji leikur dagsins fór fram á Akureyri en þar mættust KA og Hamar. Hamarsmenn unnu leik gærdagsins 0-3 og héldu uppteknum hætti í fyrstu hrinu sem þeir unnu eftir mikla baráttu. KA mættu afar sterkir til leiks í annarri hrinu en misstu forskotið niður. KA átti þó góðan lokakafla og jafnaði leikinn 1-1. Mikið jafnræði var með liðunum í þriðju hrinu en í stöðunni 17-17 stungu norðanmenn af. KA skoraði næstu 7 stig og vann hrinuna þægilega, 25-18. Fjórða hrinan var æsispennandi en KA hafði betur með minnsta mun og tryggði 1-3 sigur. Þetta var jafnframt fyrsti sigur KA á tímabilinu í þremur tilraunum.

Keppni í Unbroken deild karla heldur áfram strax á miðvikudag þegar Afturelding og HK mætast að Varmá. Sama kvöld mætast þessi lið einnig í kvennaflokki en tveir aðrir leikir fara fram í kvennaflokki. Völsungur tekur á móti KA og HK Ýmir fær Þrótt R/BFH í heimsókn í Digranes.

Úrslit dagsins í Unbroken deild karla

Þróttur Reykjavík 2-3 Þróttur Fjarðabyggð (25-23, 25-23, 27-29, 20-25, 15-17)

HHK 1-3 Vestri (15-25, 25-22, 14-25, 19-25)

KA 3-1 Hamar (22-25, 25-23, 25-18, 25-23)