Jón Ólafur Valdimarsson alþjóðadómari dæmir um helgina tvo leiki í European League í Finnlandi.
Jón var aðstoðardómari í leik Sviss og Finnlands í dag ,föstudag ásamt hinni belgísku Marie-Catherine Boulanger og verður svo aðaldómari í leik Finnlands og Albaníu á sunnudag en þar dæmir hann með Janne Mantyla frá Finnlandi.
Aðrir íslenskir alþjóðadómarar voru ekki með verkefni þessa helgina.