Tap í fyrsta leik í Austurríki

Kvennalandsliðið í leik í European Silver League 2025 (Mynd: Mummi Lú)

A-landslið kvenna hóf leik í European League í dag þegar liðið mætti Slóvakíu í fyrsta leik. Leikurinn fór fram í Austurríki þar sem einn riðla keppninnar er haldinn þessa helgina.

Keppnisfyrirkomulag í EuroLeague er á þann hátt að þrjú lið hittast og leika í litlum riðli yfir helgi. Íslenski hópurinn ferðaðist til Austurríkis í gær, föstudag, en fyrsti leikur liðsins var gegn Slóvakíu í dag. Leikið var í glæsilegri höll í Schwechat, rétt fyrir utan Vínarborg. Slóvakía mætti heimakonum í gær en þar vann Slóvakía sannfærandi 3-0 sigur. Því var ljóst að leikur dagsins yrði erfiður fyrir íslensku stelpurnar enda um öflug lið að ræða.

Erfiðlega gekk hjá íslenska liðinu í fyrstu hrinu en liðið átti fínar rispur. Sterkar uppgjafir Slóvakíu gerðu Íslandi erfitt fyrir en liðið sýndi góðan karakter og stóð sig mun betur í næstu hrinum. Önnur hrinan var jöfn þar til um miðbik hennar en þá stakk slóvakíska liðið af. Í þriðju hrinu var leikurinn svo ansi jafn en Slóvakía reyndist sterkari á lokakaflanum. Slóvakía vann 0-3 sigur og vann því báða leiki sína þessi helgina.

Seinni leikur Íslands fer fram á morgun þegar stelpurnar mæta heimakonum frá Austurríki. Sá leikur hefst klukkan 13:05 á íslenskum tíma.

Ísland 0-3 Slóvakía (10-25, 15-25, 19-25). Lejla Sara Hadziredzepovic var stigahæst hjá íslenska liðinu með 11 stig en Elísabet Einarsdóttir kom næst með 7 stig. Karin Sunderlikova var stigahæst hjá Slóvakíu með 15 stig.