Evrópumót karla hefst á morgun

Evrópumót karla hefst á morgun en mótið fer fram í fjórum mismunandi löndum. Leikið verður í Búlgaríu, Finnlandi, Ítalíu og Rúmeníu.

Evrópumóti kvenna lauk um helgina og nú er komið að körlunum að láta ljós sitt skína. Mótið hefst á morgun, 9. september, og stendur yfir til laugardags 25. september. Þá fer úrslitaleikurinn fram í Mílanó á Ítalíu. Á síðasta Evrópumóti var leikið til úrslita í Róm en þar unnu Pólverjar til gullverðlauna eftir sigur gegn Ítalíu í úrslitaleik mótsins.

Aðeins tveir leikir fara fram á morgun en dagana á eftir verður mikið meira um að vera. Yfirleitt fara 8 leikir fram daglega en það gildir um dagana 10.-16. september. Riðlakeppninni lýkur síðan með fjórum leikjum þann 17. september.

Riðill A – Ítalía (Modena)

Heimamenn í ítalska liðinu verða að teljast afar sigurstranglegir í A-riðli en þar er einnig að finna lið Tékklands og Slóveníu. Auk þessara liða eru Svíþjóð, Grikkland og Slóvakía í A-riðlinum og munu þau eflaust berjast um 4. sætið. Efstu fjögur sæti hvers riðils fara áfram í 16-liða úrslit Evrópumótsins.

Riðill B – Búlgaría (Sofia)

Lið Búlgaríu hefur leikið afar vel undanfarin ár og vann til silfurverðlauna á HM 2025. Þeir eru þó ekki sigurstranglegasta lið riðilsins þar sem að Pólland er einnig í B-riðlinum. Með þeim er sterkt lið Úkraínu en einnig Portúgal, Ísrael og Norður-Makedónía.

Riðill C – Finnland (Tampere)

Samkeppnin í C-riðli er afar hörð en þar eru mörg öflug lið. Nágrannar Belgíu og Hollands eru bæði í riðlinum en Finnland er heimaliðið í þessum riðli. Norðurlöndin eiga annan fulltrúa en Danmörk er einnig í C-riðlinum og þá eru Serbía og Eistland í þessum afar áhugaverða riðli.

Riðill D – Rúmenía (Cluj)

Stórlið Frakklands og Þýskalands eru í D-riðlinum þar sem Rúmenía leikur á sínum heimavelli. Sterkt lið Tyrklands er líklegt til að stríða fyrrnefndum risaþjóðum en einnig munu Lettland og Sviss spreyta sig gegn þessum andstæðingum.

Leikir dagsins – 9. september

16:00 Búlgaría – Norður-Makedónía

17:00 Rúmenía – Lettland