Tyrkland og Pólland í undanúrslit

Í gær lauk 8-liða úrslitunum á EM kvenna með tveimur leikjum. Serbía og Ítalía höfðu þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum.

Pólland mætti Hollandi í fyrri leik gærdagsins en pólska liðið var ósigrað og hafði aðeins tapað þremur hrinum á mótinu til þessa. Holland hafði lent í nokkuð meiri vandræðum og vann meðal annars nauman 3-2 sigur á Slóveníu í 16-liða úrslitum. Pólverjar byrjuðu leikinn mun betur en þær hollensku komust smám saman í gang og var leikurinn jafn 1-1. Síðustu tvær hrinurnar voru spennandi en Pólland hafði betur í báðum tilvikum og vann 3-1 sigur.

Þýskaland og Tyrkland mættust einnig í gær en Tyrkir, sem eru ríkjandi Evrópumeistarar, léku á sínum heimavelli. Mæting á leiki Tyrklands hefur verið mögnuð sem gefur liðinu ákveðið forskot í keppninni. Hvattar áfram af rúmlega tólf þúsund áhorfendum byrjuðu þær tyrknesku mun betur. Þær unnu fyrstu hrinu örugglega en Þýskaland náði að jafna 1-1 með góðri endurkomu. Það dugði þó ekki til og líkt og í fyrri leik dagsins sigldi Tyrkland heim 3-1 sigri og tryggði sér sæti í undanúrslitum.

Engir leikir fara fram í dag, föstudag, en fjörið heldur áfram um helgina. Undanúrslitaleikir mótsins fara fram á laugardag en á sunnudag verður leikið til úrslita. Tyrkland og Serbía mætast í fyrri undanúrslitaleiknum en í þeim seinni mætast Pólland og Ítalía.

Úrslit gærdagsins – 3. september

Pólland 3-1 Holland (25-16, 20-25, 25-20, 25-23). Magdalena Stysiak og Julita Piasecka skoruðu 14 stig hvor fyrir Pólland.

Þýskaland 1-3 Tyrkland (18-25, 25-22, 18-25, 22-25). Melissa Vargas fór fyrir heimakonum og skoraði 26 stig fyrir Tyrkland.

Undanúrslitaleikir – Laugardagur 5. september

13:00 Tyrkland – Serbía

16:00 Pólland – Ítalía