Tyrkland Evrópumeistari kvenna árið 2026!

Evrópumóti kvenna, EuroVolley lauk í dag með úrslitaleik milli Tyrklands og Ítalíu en leikurinn fór fram í Istanbul, Tyrklandi.

Ítalía byrjaði leikinn betur og stjórnaði fyrstu hrinunni frá byrjun til enda. Þrátt fyrir að hafa verið púaðar af þeim 17.299 áhorfendum í Sinan Erdem Sports Hall þegar þær mættu til leiks, þá var það öflugur sóknarleikur og góður varnarleikur Ítalska liðsins sem skilaði þeim sigri í fyrstu hrinu. Ítalska liðið vann hrinuna 25–16 og lækkaði aðeins niður í fjölmennum stuðningsmönnum Tyrklands.

Tyrkland svaraði fyrir sig í annarri hrinu. Liðið bætti hávörn sína og setti meiri pressu á Ítalíu með sterkum uppgjöfum. Tyrkir héldu ró sinni á lokametrunum og unnu hrinuna 25–22 og jöfnuðu leikinn.

Ítalía sýndi síðan sína bestu frammistöðu í leiknum og vann þriðju hrinuna sannfærandi, 25–12 og virtist Evrópumeistaratitillinn vera að renna Tyrkjum úr greipum. En með góðum stuðningi áhorfenda náðu þær Tyrknesku að jafna leikinn á ný með sigri í fjórðu hrinu 25-21. Allt í járnum og ljóst að oddahrinu þurfti til að skera úr um sigurvegara.

Tyrkneska liðið hélt áfram á sömu braut í oddahrinunni. Sterkur varnarleikur, öflugar uppgjafir og öruggar sóknir tryggðu liðinu yfirhöndina áður en þær innsigluðu endurkomuna með 15–10 sigri.

Þetta er annar Evrópumeistaratitill Tyrklands í röð, en liðið varð Evrópumeistari í fyrsta sinn árið 2023. Sigurinn var einnig ákveðin hefnd fyrir tapið gegn Ítalíu í fimm hrinum í úrslitaleik heimsmeistaramóts kvenna árið 2025.

Árangurinn á mótinu staðfestir stöðu Tyrklands sem eitt af fremstu kvennalandsliðum heims. Með sigrinum tryggði liðið sér jafnframt þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 2028.

Fyrir Ítalíu var tapið sársaukafullur endir á annars glæsilegu móti. Ítalska liðið komst tvívegis yfir í úrslitaleiknum en tókst ekki að stöðva endurkomu Tyrklands í fjórðu hrinu og oddahrinunni.

Stigahæstar í leiknum í dag voru Paola Ogechi Egonu leikmaður Ítalíu og Melissa Vargas leikmaður Tyrklands, báðar með 28 stig.

Eftir leik voru svo veitt verðlaun fyrir bestu leikmenn mótsins, “All-Star team” en þau verðlaun voru eftirfarandi:

Díógonal: Melissa Vargas (Tyrkland)
Uppspilari: Alessia Orro (Ítalía)
Frelsingi: Gizem Örge (Tyrkland)
Miðju blokkari: Hena Kurtagic (Serbía)
Miðju blokkari: Zehra Günes (Tyrkland)
KannturMyriam Sylla (Ítalía)
Kanntur: Derya Cebecioglu (Tyrkland)
Þjálfari: Daniele Santarelli (Tyrkland)
MVP: Melissa Vargas (Tyrkland)