Evrópumót kvenna er langt komið en 8-liða úrslit keppninnar hófust í gær. Tveir leikir fóru fram í Brno (Tékkland) en í dag fara seinni tvær viðureignirnar fram í Istanbul (Tyrkland).
Serbía og Grikkland mættust í fyrri leik gærdagsins en Serbía hefur verið á miklu skriði. Grikkland hefur verið hálfgert spútniklið á mótinu en þær mættu ofjörlum sínum í gær. Serbía vann fyrstu hrinu afar auðveldlega og hafði góð tök á leiknum eftir það. Serbía vann að lokum 3-0 sigur og varð þar með fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum.
Í seinni leiknum mættust Ítalía og Svíþjóð en það var í annað sinn sem liðin mættust á mótinu. Liðin léku í sama riðli en þar vann Ítalía sannfærandi 3-0 sigur. Svíþjóð byrjaði hins vegar af miklum krafti í gær og vann fyrstu hrinu leiksins. Næstu hrinur voru æsispennandi en Ítalía reyndist sterkari aðilinn á lokakafla þeirra. Ítalía tryggði sér 3-1 sigur eftir að hafa unnið tvær hrinur með minnsta mun. Isabelle Haak er langstigahæsti leikmaður mótsins en hún skoraði 42 stig fyrir Svíþjóð í gær. Það dugði ekki til sigurs en líklegt verður að teljast að hún verði stigahæst allra á mótinu þrátt fyrir að vera úr leik.
Í dag mætir Pólland liði Hollands og Tyrkland mætir Þýskalandi á heimavelli sínum í Istanbul. Búast má við tveimur hörkuleikjum enda sæti í undanúrslitum undir.
Úrslit gærdagsins – 2. september
Serbía 3-0 Grikkland (25-14, 25-20, 25-17). Tijana Boskovic skoraði 17 stig fyrir Serbíu.
Ítalía 3-1 Svíþjóð (21-25, 26-24, 25-21, 25-23). Paola Egonu skoraði 27 stig fyrir Ítalíu en Isabelle Haak skoraði 42 stig fyrir Svíþjóð.
Leikir dagsins – 3. september
13:00 Pólland – Holland
16:00 Þýskaland – Tyrkland