Þessi lönd hafa einnig tryggt sig inná Evópumót U18 ára liða í sumar

Eins og flestum er orðið ljóst, náðu U18 ára landslið Íslands sögulegum árangri á SCA móti U18 ára liða á Írlandi í vikunni. Bæði íslensku liðin unnu mótið og tryggðu sér þátttöku á lokamóti EM í sumar.

Strákarnir halda til Ítalíu en Evrópumótið fer fram dagana 7.-18. Júlí í Porto San Giorgio og Cisterna di Latina. Auk Íslands voru fleiri lið sem tryggðu sig áfram í gegnum undankeppnir síðustu vikurnar en hér má sjá hvaða lið hafa tryggt sig áfram á lokamótið í gegnum 1.umferð undankeppni.

Nevza: Finnland
Eevza: Pólland
Wevza: Spánn
BVA: Búlgaría
Mevza: Slóvenía
SCA: Ísland

2.umferð fer svo fram 26.-29. mars en þangað fara 20 lið sem ekki komust áfram í gegnum 1.umferð.

Nevza: Svíþjóð
Eevza: Úkraína, Lettland, Eistland
Wevza: Belgía, Frakkland, Þýskaland, Portúgal, Holland, Grikkland
BVA: Serbía, Svartfjallaland, Tyrkland, Rúmenía
Mevza: Tékkland, Austurríki, Króatía, Slóvakía, Ísrael
SCA: Írland

2.umferð er spiluð í 5 riðlum sem innihalda 4 lið hver og þar er spilað allir við alla.


Stelpurnar halda svo til Lettlands eða Litháen dagana 1.-12. Júlí. Auk Íslands voru fleiri lið sem tryggðu sig áfram í gegnum undankeppnir síðustu vikurnar en hér má sjá hvaða lið hafa tryggt sig áfram á lokamótið í gegnum 1.umferð undankeppni.

Nevza: Finnland
Eevza: Pólland
Wevza: Ítalía
BVA: Tyrkland
Mevza: Ungverjaland
SCA: Ísland

2.umferð fer svo fram 26.-29. mars en þangað fara 20 lið sem ekki komust áfram í gegnum 1.umferð.

Nevza: Svíþjóð
Eevza: Úkraína, Eistland, Azerbaijan, Georgía
Wevza: Belgía, Frakkland, Þýskaland, Portúgal, Holland
BVA: Búlgaría, Svartfjallaland, Tyrkland, Rúmenía
Mevza: Tékkland, Austurríki, Króatía, Slóvakía, Slóvenía
SCA: Írland

2.umferð er spiluð í 5 riðlum sem innihalda 4 lið hver og þar er spilað allir við alla.