Karlalið KA tryggði sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í blaki eftir langan og jafnan leik í Laugardalshöll. Leikurinn fór í oddahrinu en þar reyndust gestirnir að norðan sterkari.
Þriðji leikur KA og Þróttar Reykjavíkur fór fram á sumardaginn fyrsta en þar vann KA afar sannfærandi sigur og náði 2-1 forystu í einvíginu. KA gat því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn þegar liðið sótti Þrótt Reykjavík heim í Laugardalshöllina í dag.
Heimamenn í Þrótti byrjuðu betur í dag og KA náði sér ekki á strik í fyrstu hrinunni. Hana vann Þróttur 25-17 eftir flottan lokakafla. KA tók betur við sér í annarri hrinu leiksins og héldu 3-4 stiga forystu alla hrinuna. KA vann 21-25 og náðu því að jafna leikinn 1-1.
Þriðja hrinan var sú jafnasta til þessa en liðin skiptust á að hafa forystuna. Bæði lið gerðu þó nokkuð af mistökum en spennan var mikil. Undir lokin voru Þróttarar öflugri og unnu 25-22 sigur. Þeir leiddu því 2-1 en aftur gáfu þeir eftir í fjórðu hrinunni. Þar byrjaði KA mun betur og endaði á að vinna sannfærandi sigur, 19-25.
Úrslitin réðust því í oddahrinunni og þar var afar jafnt framan af hrinu. KA tók hins vegar yfir í seinni hluta hrinunnar og vann öruggan 15-10 sigur. KA vann leikinn þar með 2-3 og einvígið 3-1. KA er því Íslandsmeistari árið 2026.
Jakub Pospiech var valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar en hann lék allan tímann fyrir KA í dag.