Enn hélt EM karla áfram að bjóða upp á spennu og óvænt úrslit en alls fóru þrír leikir gærdagsins alla leið í oddahrinu.
Í A-riðli vann Svíþjóð flottan sigur á Slóvakíu sem dugði liðinu þó skammt. Bæði lið eru úr leik en Slóvenía kom sér í afar góða stöðu með sigri á Tékklandi. Pólland og Búlgaría mættust í stórleik B-riðils en Búlgaría hafði 3-2 sigur í mögnuðum leik. Aleksandar Nikolov er langstigahæsti leikmaður Búlgaríu á mótinu en hann skoraði 36 stig í leiknum gegn Póllandi. Þrátt fyrir þessi úrslit vann Pólland riðilinn, Úkraína hélt 2. sætinu og Búlgaría endaði í 3. sæti. Portúgal hreppti 4. sætið eftir að Norður-Makedónía vann nokkuð óvæntan sigur gegn Ísrael.
C-riðill hefur verið frábær skemmtun en þar hafa gestgjafar Finnlands verið í miklu stuði. Auk þess tryggðu Danir sér sæti í 16-liða úrslitum þrátt fyrir 2-3 tap gegn Serbíu. Þá vann Eistland 3-1 sigur gegn Hollandi en bæði lið eru úr leik. Að lokum mættust Tyrkland og Lettland í úrslitaleik um 4. sæti D-riðils. Lettland gerði sér lítið fyrir og vann 3-1 sigur sem þýðir að Tyrkland er úr leik á mótinu. Lettland fer hins vegar í 16-liða úrslitin og mætir þar Póllandi. Rúmenía vann 3-2 sigur gegn Frakklandi en lauk þó keppni í 3. sæti riðilsins á eftir Frakklandi og Þýskalandi.
Fjórir leikir fara fram í dag þegar riðlakeppninni lýkur. Grikkland getur náð 3. sæti A-riðils með sigri gegn Slóvakíu en í kvöld mætast Ítalía og Slóvenía í allra síðasta leik riðlakeppninnar. Slóvenía getur náð efsta sætinu af Ítalíu með 3-0 sigri. Serbía og Belgía mætast í leik um 2. sæti C-riðils en Finnland mætir Eistlandi í sama riðli. Tapi Finnland á Belgía einnig möguleika á að stela efsta sætinu af finnska liðinu.
Úrslit gærdagsins – 16. september
Ísrael 0-3 Norður-Makedónía (21-25, 23-25, 22-25). Shay Liberman skoraði 21 stig fyrir Ísrael en Nikola Gjorgiev skoraði 20 stig fyrir Norður-Makedóníu.
Danmörk 2-3 Serbía (25-19, 25-21, 21-25, 23-25, 14-16). Mads Kyed Jensen skoraði 29 stig fyrir Danmörku en Veljko Masulovic skoraði 34 stig fyrir Serbíu.
Svíþjóð 3-1 Slóvakía (19-25, 25-23, 25-21, 25-19). Jacob Link skoraði 16 stig fyrir Svíþjóð en Erik Gulak skoraði 19 stig fyrir Slóvakíu.
Tyrkland 1-3 Lettland (24-26, 25-23, 24-26, 16-25). Kaan Gürbüz skoraði 30 stig fyrir Tyrkland en Kristaps Smits skoraði 23 stig fyrir Lettland.
Pólland 2-3 Búlgaría (25-20, 29-31, 23-25, 25-19, 18-20). Kamil Semeniuk skoraði 22 stig fyrir Pólland en Aleksandar Nikolov átti stórleik og skoraði 36 stig fyrir Búlgaríu.
Frakkland 2-3 Rúmenía (25-16, 27-25, 20-25, 33-35, 12-15). Stephen Boyer skoraði 21 stig fyrir Frakkland en Cristian-Daniel Chitigoi skoraði 28 stig fyrir Rúmeníu.
Holland 1-3 Eistland (25-27, 22-25, 25-18, 23-25). Silvester Meijs skoraði 19 stig fyrir Holland en Renee Teppan skoraði 14 stig fyrir Eistland.
Tékkland 1-3 Slóvenía (26-24, 13-25, 25-27, 23-25). Patrik Indra skoraði 16 stig fyrir Tékkland en Nik Mujanović skoraði 21 stig fyrir Slóveníu.
Leikir dagsins – 17. september
14:00 Serbía – Belgía
14:00 Slóvakía – Grikkland
17:00 Finnland – Eistland
19:05 Ítalía – Slóvenía