Allt orðið ljóst fyrir 16-liða úrslitin

Lokaleikirnir í riðlakeppni EM karla fóru fram í gær. Enn gátu nokkur lið gert sér leiðina að úrslitunum auðveldari með góðum úrslitum.

Aðeins fjórir leikir fóru fram í gær sem verður að teljast lítið eftir þétta daga undanfarið. Spennan var þó töluverð en tveir leikjanna fóru í oddahrinu. Ítalía vann nauman 3-2 sigur á Slóveníu en þessi lið enduðu í efstu tveimur sætum A-riðils. Grikkland vann Slóvakíu en endaði í 3. sæti riðilsins á eftir Ítalíu og Slóveníu. Finnland tapaði fyrir Eistlandi en eistneska liðið var úr leik á mótinu. Á sama tíma vann Belgía gegn Serbíu og komst þannig upp fyrir Finnland í efsta sæti C-riðils.

Næst á dagskrá verða 16-liða úrslit mótsins en þau hefjast laugardaginn 19. september og standa yfir fram á mánudag. Danir eiga erfitt verkefni fyrir höndum en þeir mæta Ítalíu í Turin. Þá mætast Búlgaría og Þýskaland á heimavelli þeirra fyrrnefndu í Sofia.

Úrslit gærdagsins – 17. september

Serbía 0-3 Belgía (19-25, 21-25, 16-25). Drazen Luburic skoraði 11 stig fyrir Serbíu en Ferre Reggers skoraði 16 stig fyrir Belgíu.

Slóvakía 1-3 Grikkland (17-25, 25-21, 22-25, 17-25). Erik Gulak og Julius Firkal skoruðu 14 stig hvor fyrir Slóvakíu en Angelos Markou skoraði 21 stig fyrir Grikkland.

Finnland 2-3 Eistland (25-22, 21-25, 22-25, 25-20, 11-15). Luka Marttila skoraði 22 stig fyrir Finnland en Renee Teppan skoraði 24 stig fyrir Eistland.

Ítalía 3-2 Slóvenía (25-19, 25-22, 27-29, 19-25, 15-9). Kamil Rychlicki skoraði 13 stig fyrir Ítalíu en Nik Mujanović skoraði 19 stig fyrir Slóveníu.

16-liða úrslit – 19. – 21. september

19. september: Pólland – Lettland 13:00

19. september: Þýskaland – Búlgaría 16:00

20. september: Úkraína – Rúmenía 13:00

20. september: Finnland – Grikkland 14:00

20. september: Frakkland – Portúgal 16:00

20. september: Ítalía – Danmörk 19:05

21. september: Belgía – Tékkland 14:00

21. september: Slóvenía – Serbía 19:00