Frakkland fór létt með Þýskaland

Riðlakeppnin á EM karla er langt komin en keppni lýkur í tveimur riðlanna í dag. Enn er barist um örfá sæti í 16-liða úrslitum en lokastaða riðlanna getur þó breyst heilmikið.

Úrslit gærdagsins voru að mestu eftir bókinni en ljóst er að mikil spenna er í öllum riðlum fyrir lokasprettinn. Portúgal vann Norður-Makedóníu en þarf að treysta á hagstæð úrslit í dag til að komast upp úr riðlinum. Belgía vann Danmörku í hörkuleik en bæði lið standa vel að vígi hvað varðar útsláttarkeppnina. Finnland og Holland mættust í sama riðli þar sem að Finnland hafði betur í oddahrinu. Þar með er Holland úr leik á mótinu. Grikkland hélt uppteknum hætti og vann Svíþjóð en sænska liðið er þar með úr leik.

Sviss hafði ekki að neinu að keppa en vann engu að síður 3-1 sigur gegn Lettum. Tyrkland og Lettland mætast því í úrslitaleik í dag þar sem sigurliðið fer áfram í 16-liða úrslitin. Pólland vann Úkraínu á sannfærandi hátt og Frakkland vann sömuleiðis þægilegan sigur á Þýskalandi. Bæði Pólland og Frakkland líta afar vel út og þykja til alls líkleg á mótinu. Það sama má segja um Ítalíu sem vann 3-1 sigur gegn sterku liði Tékklands.

Keppni í B-riðli og D-riðli lýkur í dag en síðustu leikir A-riðils og C-riðils fara fram á morgun. Hreinn úrslitaleikur Tyrklands og Lettlands stendur upp úr en einnig berst Eistland fyrir lífi sínu í C-riðli. Fjölmargir hörkuleikir eru á dagskrá sem ráða miklu um mögulega leið liðanna í útsláttarkeppninni.

Úrslit gærdagsins – 15. september

Norður-Makedónía 0-3 Portúgal (13-25, 20-25, 20-25). Aleksandar Ljaftov og Stoina Iliev skoruðu 8 stig hvor fyrir Norður-Makedóníu en Alexandre Ferreira skoraði 17 stig fyrir Portúgal.

Belgía 3-1 Danmörk (19-25, 25-20, 25-19, 25-23). Ferre Reggers skoraði 25 stig fyrir Belgíu en Oskar Madsen skoraði 19 stig fyrir Danmörku.

Grikkland 3-1 Svíþjóð (25-23, 25-21, 17-25, 25-20). Dimitrios Mouchlias skoraði 20 stig fyrir Grikkland en Axel Enlund skoraði 24 stig fyrir Svíþjóð.

Lettland 1-3 Sviss (22-25, 19-25, 25-16, 22-25). Kristaps Smits og Renars Jansons skoruðu 15 stig hvor fyrir Lettland en Lars Migge skoraði 19 stig fyrir Sviss.

Pólland 3-0 Úkraína (25-20, 25-13, 25-22). Bartłomiej Bołądź skoraði 20 stig fyrir Pólland en Vasyl Tupchii skoraði 8 stig fyrir Úkraínu.

Frakkland 3-0 Þýskaland (25-21, 25-17, 25-19). Théo Faure skoraði 18 stig fyrir Frakkland en Anton Brehme skoraði 11 stig fyrir Þýskaland.

Holland 2-3 Finnland (25-18, 21-25, 26-24, 20-25, 11-15). Silvester Meijs skoraði 20 stig fyrir Holland en Luka Marttila skoraði 22 stig fyrir Finnland.

Tékkland 1-3 Ítalía (25-23, 16-25, 20-25, 20-25). Lukas Vasina og Patrik Indra skoruðu 12 stig hvor fyrir Tékkland en Yuri Romanò skoraði 24 stig fyrir Ítalíu.

Leikir dagsins – 16. september

13:00 Ísrael – Norður-Makedónía

14:00 Danmörk – Serbía

14:00 Svíþjóð – Slóvakía

14:00 Tyrkland – Lettland

16:00 Pólland – Búlgaría

17:00 Frakkland – Rúmenía

17:00 Holland – Eistland

19:00 Tékkland – Slóvenía