Afar óvænt úrslit áttu sér stað á EM karla á mánudag. Rúmenía og Grikkland unnu sigra gegn sterkum þjóðum.
Gærdagurinn fór rólega af stað þegar Úkraína vann auðveldlega gegn Portúgal og Þýskaland vann góðan sigur á Sviss. Serbía og Holland mættust hins vegar í maraþonleik sem Serbía vann 3-2 eftir að hafa lent 0-2 undir. Drazen Luburic átti magnaðan leik og skoraði 38 stig en það er þriðja hæsta stigaskor leikmanns á EM í blaki karla. Sigurinn var nauðsynlegur fyrir vonir Serbíu á mótinu en Holland þarf að vinna síðustu tvo leiki sína til að eiga möguleika á að komast áfram. Tékkland vann þá sannfærandi sigur á Slóvakíu og tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum.
Gestgjafar Búlgaríu lentu í vandræðum gegn Ísrael en voru mun sterkari aðilinn seinni hluta leiks. Þeir unnu 3-1 sigur og tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitunum. Búlgaría, Pólland og Úkraína hafa öll tryggt sér sæti í útsláttarkeppninni en Ísrael, Portúgal og Norður-Makedónía berjast um 4. sætið í B-riðlinum. Eistland er enn í vandræðum en liðið tapaði 3-1 gegn Belgíu og er nánast úr leik. Þá vann Rúmenía óvæntan en glæsilegan 3-1 sigur gegn Tyrklandi og fer upp úr D-riðlinum.
Í lokaleik gærdagsins mættust Slóvenía og Grikkland í A-riðlinum á Ítalíu. Slóvenía var fyrirfram talið mun sterkara liðið en geysimörg mistök urðu þeim að falli. Grikkland lék vel og tryggði sér óvæntan 3-1 sigur og kom liðið sér í fína stöðu fyrir lokasprettinn í riðlakeppninni.
Í dag fer spennan svo sannarlega að aukast en nokkur lið leika þá síðustu leiki sína í riðlakeppninni. Því verður margt orðið ljóst í lok dags varðandi 16-liða úrslitin. Frakkland og Þýskaland mætast í afar spennandi leik, Pólland mætir Úkraínu og Tékkland mætir Ítalíu auk fleiri áhugaverðra og spennandi leikja.
Úrslit gærdagsins – 14. september
Úkraína 3-0 Portúgal (25-18, 25-18, 25-19). Oleh Plotnytskyi skoraði 19 stig fyrir Úkraínu en Manuel Figueiredo og Lourenço Martins skoruðu 8 stig hvor fyrir Portúgal.
Þýskaland 3-1 Sviss (25-19, 25-17, 22-25, 25-21). Tobias Brand skoraði 25 stig fyrir Þýskaland en Étienne Schalch skoraði 22 stig fyrir Sviss.
Serbía 3-2 Holland (20-25, 23-25, 30-28, 25-15, 17-15). Drazen Luburic átti stórleik og skoraði 38 stig fyrir Serbíu en Silvester Meijs skoraði 25 stig fyrir Holland.
Slóvakía 0-3 Tékkland (21-25, 14-25, 20-25). Erik Gulak skoraði 13 stig fyrir Slóvakíu en Patrik Indra skoraði 18 stig fyrir Tékkland.
Búlgaría 3-1 Ísrael (23-25, 25-22, 25-15, 25-20). Denislav Bardarov og Aleksandar Nikolov skoruðu 18 stig hvor fyrir Búlgaríu en Mark Rura skoraði 18 stig fyrir Ísrael.
Eistland 1-3 Belgía (17-25, 25-18, 21-25, 14-25). Andres Jefanov skoraði 16 stig fyrir Eistland en Sam Deroo skoraði 22 stig fyrir Belgíu.
Rúmenía 3-1 Tyrkland (25-19, 25-21, 20-25, 25-18). Alexandru Rata skoraði 22 stig fyrir Rúmeníu en Gökçen Yüksel skoraði 17 stig fyrir Tyrkland.
Slóvenía 1-3 Grikkland (18-25, 25-19, 23-25, 20-25). Nik Mujanović skoraði 20 stig fyrir Slóveníu en Dimitrios Mouchlias skoraði 12 stig fyrir Grikkland.
Leikir dagsins – 15. september
13:00 Norður-Makedónía – Portúgal
14:00 Belgía – Danmörk
14:00 Grikkland – Svíþjóð
14:00 Lettland – Sviss
16:00 Pólland – Úkraína
17:00 Frakkland – Þýskaland
17:00 Holland – Finnland
19:05 Tékkland – Ítalía