Yfirlit yfir nýjustu reglubreytingar FIVB/CEV fyrir komandi tímabil

Nokkuð er um reglubreytingar sem taka gildi á komandi tímabili og hér má sjá yfirlit yfir helstu breytingar sem FIVB og CEV hafa tekið í notkun:

Skuggi (Breyting sem tók gildi undir lok síðasta tímabils):

  • Liðum er óheimilt að mynda skugga með hópamyndun eða með því að hafa hendur fyrir ofan haus.

Uppstilling uppgjafarliðs:

  • Áður: Leikmenn uppgjafarliðs þurftu að standa í sínum stöðum samkvæmt sendiröð þegar uppgjafari gaf upp.
  • Núna: Leikmönnum uppgjafarliðs er heimilt að standa hvar sem er (innan síns leikvallar) þegar uppgjafari gefur upp

Uppstilling móttökuliðs:

  • Áður: Leikmenn móttökuliðs máttu ekki hlaupa úr stöðum fyrr en uppgjafari sló boltann.
  • Núna: Leikmönnum móttökuliðs er heimilt að hlaupa úr stöðum um leið og uppgjafari sleppir boltanum.

Hvenær bolti sem fer út fyrir antennu er dæmdur út:

  • Áður: Dómari þurfti að bíða eftir því að lið kláruðu sínar þrjár snertingar áður en hann dæmir bolta út sem fer út fyrir antennu.
  • Núna: Dómari flautar bolta út um leið og hann fer út fyrir antennu þegar lið er búið með tvær eða þrjár snertingar

Tvíslag:

Tvíslag í fingurslagi er eingöngu dæmt þegar óhreint slag eftir fingurslag fer yfir net í annarri eða þriðju snertingu. (Enn er dæmt tvíslag þegar leikmaður snertir boltann tvisvar)

 

Nánari yfirlit yfir breytingar fyrir komandi tímabil má sjá hér:
Yfirlit yfir breytingar fyrir komandi tímabil