Einn leikur fór fram í Unbroken deild kvenna í dag en þar mættust Völsungur og Þróttur Fjarðabyggð. Þessi sömu lið mættust einnig í gær en þar hafði Völsungur betur og vann öruggan 3-0 sigur á heimavelli.
Gestirnir frá Neskaupstað byrjuðu vel í dag og leiddu framan af fyrstu hrinu leiksins. Völsungur saxaði smám saman á forskotið og náði yfirhöndinni fyrir lokakaflann. Völsungur var sterkari undir lokin og vann góðan 25-21 sigur. Liðin skiptust á að hafa forystuna í annarri hrinu sem var ansi sveiflukennd. Seinni hluti hrinunnar var eign Völsungs sem vann 25-19 og tók 2-0 forystu.
Þróttur Fjarðabyggð byrjaði afar vel í þriðju hrinu og virtust gestirnir staðráðnir í að koma leiknum í fjórar eða jafnvel fimm hrinur. Völsungur sneri dæminu þó fljótlega við og náði forskotið tveggja stafa tölu áður en hrinan var öll. Völsungur vann auðveldan 25-14 sigur sem gulltryggði 3-0 sigur í leiknum og öll þrjú stigin. Völsungur er nú með 28 stig í 3. sæti Unbroken deildar kvenna.
Stigahæst í liði Völsungs var Inga Björg Brynjúlfsdóttir með 15 stig en næst kom Taylor Horsfall með 14 stig. Heiða Elísabet Gunnarsdóttir skoraði 12 stig fyrir Þrótt Fjarðabyggð.
Á þriðjudag mætast Þróttur R/BFH og Afturelding í gríðarlega mikilvægum leik en á miðvikudag mætast KA og Völsungur. Næstu helgi fara svo alls sex leikir fram í Unbroken deild kvenna og þá kemur í ljós hvort HK eða KA verði deildarmeistari. Þar að auki er hörð barátta um 4. sæti deildarinnar sem er jafnframt síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í úrslitakeppninni. Völsungur stendur vel að vígi í 3. sæti en aðeins munar einu stigi á Aftureldingu og Þrótti R/BFH í 4. og 5. sæti.