Völsungur í 3. sæti eftir annan sigur fyrir austan

Mynd: Sigga Þrúða

Einn leikur fór fram í Unbroken deild kvenna í dag en þar mættust Þróttur Fjarðabyggð og Völsungur öðru sinni þessa helgina.

Leik gærdagsins lauk með 0-3 sigri Völsungs þrátt fyrir góðar skorpur hjá Þrótturum. Líkt og í gær byrjuðu heimakonur mjög vel og leit út fyrir að þær myndu fara létt með fyrstu hrinu leiksins. Völsungur náði hins vegar að vinna upp 9 stiga forskot og jafna leikinn undir lokin. Það dugði ekki til og Þróttur F vann fyrstu hrinuna eftir upphækkun.

Eftir þessa öflugu byrjun áttu Þróttarar ekki mikla möguleika. Völsungur lék mun betur og vann næstu þrjár hrinur afar örugglega. Maria Jimenez Gallego skoraði 13 stig fyrir Þrótt F og Sylvía Ósk Jónsdóttir bætti við 10 stigum. Hjá Völsungi var Taylor Nicole Horsfall langstigahæst með 25 stig en Inga Björg Brynjúlfsdóttir kom næst með 12 stig.

Þróttur Fjarðabyggð 1-3 Völsungur (28-26, 14-25, 17-25, 17-25)

Völsungur sótti því sex stig þessa helgina. Það kemur liðinu upp í 3. sæti með 9 stig eftir 7 leiki. Þar á eftir koma Afturelding (8 stig, 7 leikir) og Þróttur R/BFH (8 stig, 8 leikir). Þróttur Fjarðabyggð er enn án stiga á botni deildarinnar.

Þróttur Fjarðabyggð leikur næst gegn Þrótti R/BFH í Laugardalshöll og fer sá leikur fram föstudagskvöldið 14. nóvember. Völsungur fær aðeins lengri pásu og mætir HK á heimavelli laugardag 22. nóvember.