Völsungur heldur áfram að bæta við sig nýjum leikmönnum.
Nýjasta viðbót við kvennalið félagsins er hin bandaríska Taylor Horsfall sem kemur til með að vera spilandi aðalþjálfari. Taylor kemur frá AEL Limassol á Kýpur en spilaði þar áður í Finnlandi.
Þá hefur félagið einnig kynnt nýjan leikmann karlaliðsins, það er spánverjinn Jorge Sanz Mora sem kemur frá VP Madrid.
