Völsungur hefndi fyrir tap gærdagsins

Mynd: Blakdeild Völsungs

Keppni í Unbroken deild kvenna hélt áfram í dag þegar liðin sem mættust í gær áttu seinni viðureignir sínar.

Í Mosfellsbæ lék Afturelding gegn Þrótti Fjarðabyggð en leikur gærdagsins fór 3-0 Aftureldingu í vil. Fyrirfram var við svipuðum leik að búast í dag en Þróttur F hefur átt erfitt uppdráttar. Í fyrstu hrinu var útlit fyrir að það myndi standast þar sem að Afturelding valtaði yfir gestina og vann afar auðveldan sigur. Þróttarar gerðu hins vegar mun betur í annarri hrinu og leiddu um miðja hrinuna. Afturelding saxaði smám saman á og vann að lokum hrinuna.

Afturelding leiddi þar með 2-0 en gestirnir gáfust ekki upp. Afturelding átti frábæra byrjun í þriðju hrinunni en Þróttur F jafnaði með góðri endurkomu. Það kom þó ekki að sök fyrir heimakonur sem voru sterkari undir lokin og unnu leikinn 3-0, líkt og í gær.

Í Laugardalshöll mættust Þróttur R/BFH og Völsungur öðru sinni en leikur gærdagsins fór alla leið í oddahrinu þar sem að Þróttur vann sigur. Gestirnir byrjuðu leik dagsins af miklum krafti og leiddu 3-13. Einhverjir höfðu þá afskrifað heimakonur en þær sneru dæminu við og jöfnuðu leikinn undir lok hrinunnar. Eftir æsispennandi lokastig vann Völsungur og þurfti upphækkun til.

Önnur hrinan var töluvert jafnari en líkt og í þeirri fyrstu reyndust gestirnir frá Húsavík sterkari undir lokin. Þær skoruðu fimm síðustu stigin og náðu afgerandi 0-2 forystu. Gangur leiksins var svipaður í þriðju hrinu og hrinunni á undan þar sem að liðin skiptust á stigum og jafnt var á flestum tölum. Nú var komið að Þrótturum að sigla sigri heim og minnkuðu þær muninn í 1-2. Eftir góða byrjun heimakvenna í fjórðu hrinu gáfu Húsvíkingar í eftir miðbik hennar og unnu að lokum nokkuð sannfærandi 1-3 sigur.

Úrslit dagsins í Unbroken deild kvenna – Sunnudagur 7. desember

Afturelding 3-0 Þróttur Fjarðabyggð (25-12, 25-21, 25-20). Sóldís Björt Leifsdóttir Blöndal var stigahæst hjá Aftureldingu með 18 stig en næst kom Tamara Kaposi-Peto með 12 stig. Maria Jimenez Gallego og Hrefna Ágústa Marinósdóttir skoruðu 8 stig hvor fyrir Þrótt Fjarðabyggð.

Þróttur R/BFH 1-3 Völsungur (26-28, 18-25, 25-23, 19-25)

Afturelding sótti því 6 stig um helgina á meðan að Þróttur R/BFH fékk 2 stig og Völsungur 4 stig. Það varð til þess að Afturelding fór upp fyrir Þrótt R/BFH og situr nú í 4. sætinu, rétt á eftir Völsungi sem er í 3. sætinu. Sem fyrr er pakkinn afar þéttur og Þróttur Fjarðabyggð rekur svo lestina með 1 stig.

Næstu helgi fara þrír leikir fram í kvennadeildinni en þar á meðal er leikur Völsungs og Aftureldingar á Húsavík. Sá leikur fer fram laugardaginn 13. desember en einnig mætast KA og HK á Akureyri. Þau lið mætast tvívegis og fer seinni leikurinn fram sunnudag 14. desember. Það verður því barist á toppnum á Akureyri en á Húsavík fer fram slagur um 3. sætið. Lokaleikur ársins 2025 verður svo þriðjudag 16. desember þegar HK mætir Þrótti R/BFH í Digranesi.