Blakdeild Völsungs tilkynnti í gærkvöldi um endurkomu tveggja leikmanna liðsins. Framundan eru mikilvægir leikir í bæði Unbroken deildinni og Kjörís bikarnum.
Kristey Marín Hallsdóttir og Heiðdís Edda Lúðvíksdóttir munu leika með Völsungi það sem eftir er tímabils en þær eru báðar uppaldar hjá félaginu. Kristey lék með KA fram að áramótum en kemur nú á láni út tímabilið 2025/26. Heiðdís Edda hafði tekið sér pásu frá blakiðkun en snýr nú aftur til að hjálpa liðinu. Kristey er uppspilari en Heiðdís getur leyst stöður kantsmassara og díó.
Einnig kemur fram í tilkynningu Völsungs að þær Margrét Embla Viktorsdóttir og Claire Isaksen hafi yfirgefið liðið.
Næsti leikur Völsungs verður þann 21. janúar þegar liðið sækir KA heim en í kjölfarið mæta Völsungar Þrótti R/BFH í Kjörísbikarnum. Sá leikur fer fram í Laugardalshöll þann 31. janúar.