Einn leikur fór fram í Kjörísbikarnum í kvöld þegar KA-Splæsir tók á móti Völsungi í 8 liða úrslitum karla.
KA-Splæsir spilar í 3.deild karla en gerði sér lítið fyrir og vann Vestra 3-2 í 16 liða úrslitum. Það var því ljóst að lið Völsungs gat ekki leyft sér að vanmeta KA-Splæsi þrátt fyrir að liðið sé þremur deildum neðar. Fækkað hefur í liði Völsungs á tímabilinu en KA-Splæsir hefur bætt við sig leikmönnum frá leiknum gegn Vestra í 16 liða úrslitum.
Leikurinn fór vel af stað og var fyrsta hrina jöfn og spennandi. Munurinn var mestur 5 stig þegar KA-Splæsir komst í 20-15. Gestirnir náðu hinsvegar að jafna 22-22 en að lokum hafði KA-Splæsir betur 26-24. Gestirnir höfðu svo betur í annarri hrinu 25-18 þrátt fyrir jafna byrjun og ljóst að ef KA-Splæsir ætlaði sér að halda bikarævintýri sínu áfram þá þyrftu þeir að spýta í lófana.
Munurinn á liðunum kom svo í ljóst í þriðju og fjórðu hrinu sem enduðu báðar með sigri Völsungs 25-14. Ljóst að bikarævintýri KA-Splæsir væri á enda en það er alltaf gaman að sjá lið úr neðri deildum íslandsmótsins taka þátt í bikarnum og hefur það sannað sig í gegnum tíðina að bikarkeppni er alltaf bikarkeppni og allt getur skeð.
Völsungur hefur hinsvegar með sigrinum tryggt sér sæti á bikarhelginni í Digranesi og ljóst að liðið getur bætt upp fyrir slakt gengi í Unbroken deildinni með góðum árangri í Kjörísbikarnum.