Einn leikur fór fram í Unbrokendeild karla í dag þegar Þróttur Reykjavík tók á móti Vestra í Laugardalshöll.
Vestri hafði fyrir leikinn unnið báða sína leiki í deildinni en Vestri tók á móti Þrótti Fjarðarbyggð um síðustu helgi. Þróttur hafði hinsvegar aðeins spilað einn leik í deildinni, síðasta miðvikudag þegar þeir töpuðu fyrir Aftureldingu 2-3.
Þróttarar byrjuðu leikinn vel á sigri í fyrstu hrinu 25-20. Gestirnir náðu hinsvegar að snúa blaðinu við með sigri í annarri hrinu 25-23 og komust svo yfir með sigri í æsispennandi þriðju hrinu 26-24. Vestri virtust svo bensínlausir í fjórðu hrinu og vann Þróttur þar nokkuð öruggan sigur 25-12 og jöfnuðu leikinn 2-2. Spennan fór svo aftur af stað í oddahrinu sem Vestri vann að lokum 15-12.
Vestri situr þá í efsta sæti með 7 stig eftir sigurinn í dag.
Þróttur Reykjavík – Vestri 2-3 (25-20, 23-25, 24-26, 25-12, 12-15)
Liðin mætast svo aftur á morgun kl 14:00.