Útsláttarkeppnin að hefjast á HM

Á morgun hefjast 16-liða úrslitin á HM karla en mótið fer fram á Filippseyjum.

Í dag, föstudag, fengu öll liðin frídag en á morgun hefjast 16-liða úrslitin á HM. Margar æsispennandi viðureignir fara fram og óvænt úrslit lituðu riðlakeppnina sem fór fram síðustu daga.

Laugardagurinn hefst á leik Tyrkja og Hollendinga en beint í kjölfarið mætast Pólland og Kanada. Lið Pólverja er eitt það allra sterkasta í heiminum og verður fróðlegt að sjá hvort þeir höndli pressuna. Á sunnudag eru svo tveir mjög áhugaverðir leikir á dagskrá. Argentína mætir Ítalíu í fyrri leiknum og í þeim seinni mætast tvö lið sem hafa komið á óvart á mótinu, Belgía og Finnland.

Mánudagur hefst á leik Búlgaríu og Portúgals en búlgarska liðið lék hvað best í riðlakeppninni. Bandaríkin mæta svo Slóveníu í seinni leik mánudagsins en þar mætast tvær þjóðir sem gera kröfu á góðan árangur. Túnis mætir spræku liði Tékklands á þriðjudag og lokaleikur 16-liða úrslitanna er svo viðureign Serbíu og Íran.

Spennandi er að sjá hvort óvænt úrslit haldi áfram að hrannast inn líkt og í riðlakeppninni. Á þessu stigi keppninnar eru engir leikir auðveldir og stefnir því í algjöra veislu fyrir áhorfendur og áhugafólk.

16-liða úrslitin

Laugardagur 20. september: Tyrkland – Holland 7:30

Laugardagur 20. september: Pólland – Kanada 12:00

Sunnudagur 21. september: Argentína – Ítalía 7:30

Sunnudagur 21. september: Belgía – Finnland 12:00

Mánudagur 22. september: Búlgaría – Portúgal 7:30

Mánudagur 22. september: Bandaríkin – Slóvenía 12:00

Þriðjudagur 23. september: Túnis – Tékkland 7:30

Þriðjudagur 23. september: Serbía – Íran 12:00