Úrslit karlaleikjanna réðust í oddahrinu

Mynd: Mummi Lú

Úrslitakeppnin um Íslandsmeistaratitil karla hófst í dag þegar fyrstu leikir undanúrslitanna fóru fram. Deildarmeistarar Hamars tóku á móti Þrótti Reykjavík í Hveragerði og Afturelding sótti KA heim á Akureyri.

Hamar (1. sæti) – Þróttur Reykjavík (4. sæti)

Þróttur Reykjavík byrjaði vel gegn deildarmeisturum Hamars og leiddi í upphafi fyrstu hrinu. Hamar tók hins vegar við sér eftir fyrstu stigin og valtaði yfir gestina. Hamar vann fyrstu hrinu auðveldlega en dæmið snerist við í annarri hrinu. Þar komst Þróttur á skrið og vann sannfærandi. Leikurinn því jafn 1-1 og töluvert um sveiflur. Enn snerist leikurinn í þriðju hrinu þar sem Hamar sigldi hægt og bítandi fram úr. Þeir höfðu þægilega forystu um miðja hrinuna og kláruðu hana nokkuð örugglega.

Fjórða hrina var æsispennandi fyrir utan fyrstu stig hrinunnar. Liðin skiptust á að hafa nauma forystu og eftir hnífjafnan lokakafla vann Þróttur R með minnsta mun og tryggði sér oddahrinu. Gestirnir úr Laugardalnum voru frábærir í oddahrinunni og unnu sigur sem var aldrei í hættu. Þróttur R leiðir því einvígið 1-0 og getur tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í næsta leik.

KA (2. sæti) – Afturelding (3. sæti)

Leikir KA og Aftureldingar á tímabilinu hafa verið jafnir og spennandi svo búist var við hörkuleik á Akureyri í dag. KA byrjaði frábærlega og hafði góða forystu framan af fyrstu hrinu en Afturelding var nálægt því að jafna leikinn. Endurkoman dugði þó ekki til og KA náði 1-0 forystu. Líkt og í Hveragerði var leikurinn sveiflukenndur og jafnaði Afturelding leikinn 1-1 með auðveldum sigri í annarri hrinu. Jafnræði var með liðunum í þriðju hrinu en um miðbik hennar stakk KA af og náði þar með 2-1 forystu í leiknum.

Afturelding tók aftur við keflinu í fjórðu hrinu og leiddi allt frá upphafi. Hana unnu þeir þægilega og þar með fór leikurinn í oddahrinu, líkt og leikurinn í Hveragerði. Afturelding tók forystuna strax og setti KA í erfiða stöðu. Þeir héldu forystunni og unnu að lokum langþráðan sigur. Viðureignir liðanna á tímabilinu höfðu allar verið jafnar en KA unnið í öllum tilvikum. Afturelding sneri því við í dag og leiðir 1-0 fyrir heimaleik sinn.

Undanúrslitin halda áfram þriðjudaginn 7. apríl þegar tveir leikir fara fram. Afturelding og KA mætast að Varmá kl. 18:00 en Þróttur R og Hamar mætast í Laugardalshöll kl. 19:00.

Úrslit dagsins – Undanúrslitaleikir karla

Hamar 2-3 Þróttur Reykjavík (25-16, 17-25, 25-19, 23-25, 9-15). Denis Pavlovs var stigahæstur hjá Hamri með 14 stig og Andrejs Iljins Koselev kom næstur með 13 stig. Kacper Kedra skoraði 20 stig fyrir Þrótt Reykjavík en Mateusz Rucinski og Przemyslaw Staciek skoruðu 15 stig hvor.

KA 2-3 Afturelding (25-19, 15-25, 25-17, 20-25, 11-15)