Úrslit dagsins í Unbroken

5 leikir voru á dagskrá í Unbroken deildum karla og kvenna í dag.

Í Unbrokendeild karla voru eftirfarandi leikir:

Völsungur – Þróttur Fjarðarbyggð 3-2 (25-22, 25-23, 18-25, 20-25, 15-13)

Vestri – Hamar 1-3 (16-25, 20-25, 25-19, 22-25)

KA – Afturelding 3-2 (25-21, 26-28, 24-26, 25-17, 15-11)

Hamar er því komið með 47 stig á toppi deildarinnar, 6 stigum á undan KA og Aftureldingu sem hafa spilað einum leik færra. Hamar getur tryggt sér deildarmeistaratitil á morgun fari svo að þeir fái 3 stig á móti Vestra og KA og Afturelding tapi stigum.

Öll þessi lið mætast aftur á morgun.

Í Unbrokendeild kvenna fóru fram eftirfarandi leikir:

HK – Þróttur R/BFH 3-0 (25-22, 25-19, 25-19)

Völsungur – Þróttur Fjarðarbyggð 3-0 (26-24, 25-13, 25-21)

HK er eins og staðan er í dag með 4 stiga forskot á toppi deildarinnar með 47 stig á meðan KA er með 43 stig en hefur spilað einum leik færra. Liðin mætast um næstu helgi og má gera ráð fyrir að þar verði spilað uppá deildarmeistaratitilinn.

Völsungur og Þróttur Fjarðarbyggð mætast svo að öðru sinni á morgun.