Seinustu helgi kláruðust átta liða úrslitin um danska meistaratitilinn og nú er orðið ljóst hvaða lið hafa tryggt sér sæti í undanúrslitum. Átta liða úrslitin voru leikin best af þremur leikjum en undanúrslitin og úrslitin verða leikin best af fimm.
Allir Íslendingarnir eru komnir áfram í undanúrslit, Sara Ósk með Holte IF, Odense Volleyball með þeim Mána og Galdri og Middelfart VK með honum Hrein Kára.
Odense Volleyball
Odense mætti VK Vestsjælland í átta liða úrslitum og tryggði sér sæti í undanúrslitum með tveimur sigrum, 3-1 (30-28, 25-18, 22-25, 25-19)og 3-0 (17-25, 18-25, 17-25).
Í undanúrslitum mætir Odense Volleyball Gentofte. Þar sem Odense endaði ofar í deildinni á liðið fyrsta heimaleik. Leikdagar eru eftirfarandi:
- 21.3 kl. 15:00
- 26.3 kl. 20:30
- 28.3 kl. 17:00
- 31.3 kl. 20:30 (ef þarf)
- 6.4 kl. 16:00 (ef þarf)
Middelfart VK
Middelfart mætti Amager í átta liða úrslitum. Amager náði að vinna einn leik óvænt, en Middelfart tryggði sér hinsvegar sæti í undanúrslitum þar sem að þeir sigruðu 2 leiki. leikirnir fóru eftirfarandi: 3-0 (25-12, 25-16, 25-14), 2-3 (19-25, 25-16, 25-23, 21-25, 15-8), 3-0 (25-16, 25-23, 25-19).
Í undanúrslitum mætir Middelfart liði Ikast KFUM sem sló óvænt út ASV Elite. Ikast endaði ofar í deildinni og á því fyrsta heimaleik. Leikdagar eru:
- 23.3 kl. 19:30
- 26.3 kl. 20:15
- 29.3 kl. 14:30
- 1.4 kl. 20:15 (ef þarf)
- 6.4 kl. 15:00 (ef þarf)
Holte IF
Holte IF fóru beint í undanúrslit eftir að hafa unnið deildina og sátu því hjá í átta liða úrslitum.
Í undanúrslitum mæta þær Gentofte og þar sem Holte endaði efst í deildinni eiga þær fyrsta heimaleik. Leikdagar eru:
- 22.3 kl. 13:30
- 26.3 kl. 18:30
- 28.3 kl. 17:00
- 31.3 kl. 18:30 (ef þarf)
- 6.4 kl. 14:00 (ef þarf)
Hin liðin í undanúrslitum kvennamegin eru ASV Elite og Brøndby VK.
Hægt er að fylgjast með leikjunum hér:
https://direktesport.dk/volleyball