U18 ára lið stúlkna komið í undanúrslit á SCA U18

Íslenska U18 ára lið stúlkna er komið í undanúrslit á Evrópumóti smáþjóða eftir öruggan sigur á Liechtenstein en mótið fer fram í Dublin, Írlandi.

Stelpurnar áttu ekki í miklum vandræðum með reynslulítið lið Liechtenstein og gátu leyft sér að dreifa spila tímanum vel.

Ísland vann leikinn 3-0 (25-15, 25-6, 25-13) og því ljóst að liðið er komið í undanúrslit en óljóst er hvort liðið mætir Skotlandi, Írlandi eða Norður Írlandi.

Undanúrslit fara fram kl 19:30.