Íslensku U17 liðin eru mætt til Írlands þar sem þau taka þátt í Evrópumóti Smáþjóða. Mótið er jafnframt hluti af undankeppni fyrir Evrópumótið 2026 í þessum aldursflokki.
Landslið drengja og stúlkna í flokki U17 leika í Dublin um helgina þar sem að bæði lið hefja leik á morgun, mánudag. Drengjamegin er leikið í einum riðli en stúlknamegin eru tveir riðlar. Þar með verður úrslitakeppni stúlknamegin en lokastaða riðilsins ræður því einfaldlega hvernig drengjakeppninni lýkur.
Auk liðanna fara tveir íslenskir dómarar með hópnum en þeir Ólafur Jóhann Júlíusson og Sævar Már Guðmundsson dæma á mótinu.

Thelma Dögg Grétarsdóttir og Jóna Margrét Arnarsdóttir þjálfa stúlknaliðið en Borja Gonzalez Vicente og Andri Hnikarr Jónsson þjálfa drengjaliðið. Hér að neðan má sjá leikmannahópa liðanna:
| Nafn | Staða | Aldur | Félag |
| Kara Margrét Árnadóttir | Uppspilari | 2009 | KA |
| Kolfinna Hafþórsdóttir | Uppspilari | 2010 | Þróttur Nes |
| Aðalheiður Guðmundsdóttir | Miðja | 2011 | HK |
| Emilía Dís Júlíusdóttir | Miðja | 2010 | Afturelding |
| Sylvía Ósk Jónsdóttir | Miðja | 2009 | Þróttur Nes |
| Alexandra Björg Andradóttir | Kantur | 2009 | UMFG |
| Anika Snædís Gautadóttir | Kantur | 2009 | KA |
| Inga Björg Brynjúlfsdóttir | Kantur | 2010 | Völsungur |
| Katla Björg Beck | Kantur | 2009 | HK |
| Katla Fönn Valsdóttir | Kantur | 2009 | KA |
| Þorbjörg Rún Emilsdóttir | Kantur | 2010 | HK |
| Sunna Bríet Búadóttir | Frelsingi | 2009 | HK |
| Nafn | Staða | Aldur | Félag |
| Kristján Már Árnason | Uppspilari | 2009 | KA |
| Valgeir Elís Hafþórsson | Universal | 2009 | Þróttur Nes |
| Fjölnir Logi Halldórsson | Miðja | 2009 | HK |
| Hafliði Rafnar Traustason | Miðja | 2009 | CV Elche |
| Þórarinn Bergur Arinbjarnarson | Miðja | 2009 | KA |
| Ágúst Leó Sigurfinsson | Kantur/Díó | 2009 | KA |
| Eiríkur Hrafn Baldvinsson | Kantur/Díó | 2009 | BF |
| Hákon Freyr Arnarsson | Kantur | 2009 | KA |
| Símon Þór Gregorsson | Kantur | 2009 | HK |
| Hjörvar Þór Hnikarsson | Frelsingi | 2010 | Völsungur/Efling |
| Markús Freyr Arnarsson | Frelsingi | 2009 | HK |
| Þrymur Rafn Andersen | Frelsingi | 2009 | Vestri |