Áfram hélt fjörið á EM kvenna en á mánudag fóru átta leikir fram líkt og dagana á undan. Fjórum keppnisdögum er lokið og línur farnar að skýrast á mörgum vígstöðvum.
Alls eru fimm lið sem hafa unnið alla þrjá leiki sína til þessa en þar að auki eru þrjú önnur taplaus lið sem hafa þó aðeins spilað tvo leiki. Tyrkland heldur áfram að gera vel á sínum heimavelli og vann þriðja leikinn í röð í gær. Það sama má segja um Azerbaijan sem hefur komið nokkuð á óvart og er liðið ósigrað í þremur leikjum. Þá er Frakkland á miklu flugi í D-riðli en þar eru einnig lið Ítalíu og Svíþjóðar.
Í dag, þriðjudag, fara fjölmargir áhugaverðir leikir fram og þar á meðal er viðureign Slóveníu og Póllands í A-riðli. Þá verða Svíþjóð og Ítalía í sviðsljósinu í D-riðlinum en Svíþjóð mætir Króatíu og Ítalía mætir Slóvakíu.
A-riðill
Pólland 3-1 Lettland (25-19, 23-25, 25-22, 26-24). Marta Levinska átti stórleik og skoraði 30 stig fyrir Lettland.
Tyrkland 3-0 Ungverjaland (26-24, 25-21, 25-14). Melissa Vargas var enn og aftur stigahæst hjá Tyrklandi en hún skoraði 24 stig.
B-riðill
Úkraína 3-0 Austurríki (25-15, 25-16, 25-12). Anna Artyshuk skoraði 21 stig fyrir Úkraínu.
Serbía 3-0 Búlgaría (25-18, 25-14, 25-20). Aleksandra Uzelac skoraði 18 stig fyrir Serbíu.
C-riðill
Holland 3-0 Portúgal (25-21, 25-18, 25-23). Nicole Van de Vosse skoraði 25 stig fyrir Holland.
Azerbaijan 3-2 Rúmenía (25-21, 25-23, 15-25, 22-25, 15-8). Polina Rahimova skoraði 26 stig fyrir Azerbaijan og Yelizaveta Ruban bætti við 24 stigum fyrir gestgjafana.
D-riðill
Króatía 3-2 Slóvakía (25-27, 19-25, 25-21, 25-22, 15-11). Karin Sunderlikova skoraði 30 stig fyrir Slóvakíu.
Svartfjallaland 0-3 Frakkland (19-25, 22-25, 17-25). Cyrielle Depie skoraði 19 stig fyrir Frakkland.