HM karla hélt áfram í dag þegar 16-liða úrslitin fóru af stað. Tveir leikir fara fram daglega næstu fjóra keppnisdaga.
Í fyrri leik dagsins mættust Tyrkland og Holland. Tyrkland vann G-riðil þar sem liðið hafði betur en öflug lið Kanada og Japan. Hollendingar enduðu í 2. sæti B-riðils, á eftir sterku liði Póllands. Holland, sem vann sigra gegn Katar og Rúmeníu í riðlinum, kom inn á góðri siglingu en Tyrkir voru ívið sigurstranglegri í aðdraganda leiksins.
Leikurinn var hnífjafn til að byrja með og unnu Hollendingar fyrstu hrinu eftir upphækkun. Tyrkir komu strax til baka og unnu aðra hrinu en aftur var munurinn lítill sem enginn. Adis Lagumdzija fór mikinn fyrir Tyrkland sem fór nokkuð létt með þriðju hrinuna og tók 2-1 forystu í leiknum. Þeir tyrknesku gáfu enn betur í þegar kom að fjórðu hrinunni og léku frábærlega. Þeir unnu hrinuna sannfærandi og leikinn þar með 3-1. Tyrkland fer því í 8-liða úrslit HM í fyrsta sinn.

Seinni leikur dagsins var svo viðureign Póllands og Kanada. Eins og áður sagði vann Pólland B-riðil en Kanada fylgdi Tyrkjum áfram úr G-riðli. Pólverjar eru sú þjóð sem flestir telja sigurstranglegasta á mótinu en eins og úrslit riðlakeppninnar sýndu er ekki hægt að slaka neitt á þegar komið er á stórmót. Pólverjarnir unnu fyrstu hrinu auðveldlega en Kanada kom strax til baka og vann aðra hrinu 23-25. Pólland reyndist sterkari aðilinn það sem eftir var leik og sýndi mátt sinn, sérstaklega í fjórðu hrinu sem vannst mjög sannfærandi. Pólverjar fara því áfram og Kanada hefur lokið keppni á HM.

Tyrkland 3-1 Holland (27-29, 25-23, 25-16, 25-19). Adis Lagumdzija var langstigahæstur í leiknum og skoraði 28 stig fyrir Tyrkland. Hjá Hollandi var Michiel Ahyi einnig öflugur og skoraði 21 stig.
Pólland 3-1 Kanada (25-18, 23-25, 25-20, 25-14). Kamil Semeniuk var frábær hjá Póllandi og skoraði 18 stig en Sharon Vernon-Evans var langstigahæstur í liði Kanada með 23 stig.
Uppsetning mótsins er á þann veg að sigurvegararnir tveir á hverjum keppnisdegi 16-liða úrslitanna mætast innbyrðis í 8-liða úrslitunum. Hér þýðir það að Tyrkland mætir Póllandi í næstu umferð og fer sá leikur fram miðvikudag 24. september.
Á morgun fara fram tveir æsispennandi leikir en Argentína og Ítalía byrja daginn á stórleik. Seinni leikurinn er uppgjör tveggja liða sem hafa komið skemmtilega á óvart en það eru Belgía og Finnland.
Leikir morgundagsins – Sunnudagur 21. september
Argentína – Ítalía 7:30
Belgía – Finnland 12:00