Tyrkland og Ítalía mætast í úrslitaleik HM kvenna 2025

Leikmenn Ítalíu fagna sigri í maraþon leik (Mynd: Volleyball World)

Í dag fóru fram undanúrslit á Heimsmeistaramóti kvenna í Tælandi.

Fyrri leikurinn var viðureign Japan og Tyrklands þar sem Tyrkland sigraði 3-1 (16-25, 25-17, 25-18, 27-25)

Tyrkland er því að komast í úrslitaleik á Heimsmeistaramótinu í fyrsta skipti í sögunni en tyrkir eru ríkjandi Evrópumeistarar.

Stigahæst í leiknum var Melissa Teresa Vargas leikmaður Tyrklands með 28 stig en Vargas hefur skorað 119 stig á mótinu til þessa, þ.a. 106 úr sókn.

Melissa Teresa Vargas leikmaður Tyrklands (Mynd: Volleyball World)

Seinni leikur dagsins var æsispennandi viðureign Ítalíu og Brasilíu en sá leikur endaði með sigri Ítalíu 3-2 (2225, 2522, 2830, 2522, 15-13)

Ítalía á þar með möguleika á að ná sér í sín önnur gullverðlaun á Heimsmeistaramóti kvenna en Ítalía varð síðast heimsmeistari árið 2002 eftir sigur á Bandaríkjunum.

Stigahæst í leiknum var hin brasilíska Gabriela Braga Guimaraes með 29 stig en hún hefur skorað 107 stig á mótinu til þessa.

Gabriela Braga Guimaraes leikmaður Brasilíu (Mynd: Volleyball World)

Bronsleikur á HM kvenna 2025

  • Japan – Brasilía, 08:30 – 7 september

Úrslitaleikur á HM kvenna 2025

  • Tyrkland – Ítalía, 12:30 – 7 september