Tvöfaldur leikdagur hjá U18 liðunum

Mynd: CEV

Bæði U18 lið Íslands léku á lokamóti EM í dag en drengirnir mættu Serbíu og stúlkurnar mættu Tyrklandi. Tveir afar erfiðir andstæðingar sem eru taldir líklegir til afreka í mótunum.

Drengirnir hófu leik fyrr í dag þegar þeir mættu Serbíu. Lið Serba mætti til leiks af krafti og náði fljótlega þægilegri forystu. Íslensku strákarnir náðu að halda í við þá en hægt og bítandi jókst forystan út hrinuna. Serbía vann þá fyrstu og gerði svo enn betur í annarri hrinunni. Þar höfðu Serbarnir töluverða yfirburði og var sigur þeirra aldrei í hættu. Þriðja hrinan var lík fyrstu hrinunni þar sem að Ísland var skammt á eftir Serbíu frá upphafi hrinunnar. Ísland minnkaði muninn í tvö stig á lokakaflanum en Serbar kláruðu dæmið og unnu 0-3 sigur.

Stúlkurnar hófu leik nánast beint í kjölfarið á drengjaleiknum þegar þær mættu Tyrklandi. Þær tyrknesku höfðu ekki enn tapað hrinu á mótinu og var því við afar erfiðum leik að búast. Íslensku stelpurnar áttu í vandræðum með kraftmikla Tyrkina sem byrjuðu allar hrinur leiksins afar vel. Sterkar uppgjafir gerðu íslensku stelpunum erfitt fyrir og vann Tyrkland þægilegan 0-3 sigur þegar upp var staðið. Inga Björg Brynjúlfsdóttir var valin besti leikmaður Íslands í leiknum.

Ísland 0-3 Serbía (20-25, 13-25, 20-25). Ágúst Leó Sigurfinnsson skoraði 14 stig fyrir Ísland en næstir komu Símon Þór Gregorsson með 9 stig og Hákon Freyr Arnarsson með 8 stig.

Ísland 0-3 Tyrkland (12-25, 10-25, 12-25). Þorbjörg Rún Emilsdóttir skoraði 8 stig fyrir Ísland og Alexandra Björg Andradóttir bætti við 5 stigum.

Bæði lið halda leik áfram á morgun. Drengirnir mæta Slóveníu klukkan 10:30 en stúlkurnar mæta Póllandi klukkan 12:00 í sínum síðasta leik.