Tvö sóttu þjálfararéttindi í sitjandi blaki

Tveir þjálfarar mættu fyrir hönd Íslands á þjálfaranámskeið í sitjandi blaki í síðustu viku. Nýlega gerði Blaksamband Íslands samstarfssamning við ParaVolley Europe og er því ljóst að Ísland tekur virkan þátt í framþróun íþróttarinnar.

Thelma Dögg Grétarsdóttir og Borja Gonzalez sóttu þjálfaranámskeið í Slóveníu dagana 26.-29. nóvember þar sem að verklegur hluti þjálfunar fór fram. Þau höfðu nú þegar staðist bóklegan hluta námskeiðsins og luku sínum verkefnum í Slóveníu með glæsibrag. Þau hafa því öðlast alþjóðleg þjálfararéttindi í sitjandi blaki.

Thelma og Borja stóðust öll sín próf og koma heim reynslunni ríkari.

Thelma Dögg er landsliðskona í blaki en áhugi hennar á sitjandi blaki hófst fyrir alvöru þegar hún hóf störf hjá Íþróttasambandi fatlaðra (ÍF). Þar eru tiltölulega fáar liðsgreinar í boði og sá Thelma tækifæri í þessari vaxandi íþrótt. Með Thelmu í för var Borja Gonzalez en Borja er afreksstjóri BLÍ og hefur þjálfað fjöldann allan af landsliðshópum Íslands síðustu ár, auk þess að hafa þjálfað hjá Þrótti Neskaupstað og Aftureldingu.

Á næstunni fara ýmis verkefni af stað í sitjandi blaki hérlendis. Stefnt er að því að halda mót í desember sem verður auglýst um leið og það verður komið á hreint. Volleyball.is mun fylgja sitjandi blakinu eftir líkt og því hefðbundna en ljóst er að þar eru mikil tækifæri fyrir unga sem aldna.