Tveir leikir fóru fram í Unbroken deild kvenna í dag, Afturelding tók á móti KA og Þróttur Reykjavík / BFH tók á móti Þrótti Fjarðarbyggða.
Fyrri leikur kvöldsins var viðureign Afturelding og KA en KA hafði þar betur 3-1 þrátt fyrir brösulega byrjun. Afturelding byrjaði leikinn vel með sigri í fyrstu hrinu 25-16 en Afturelding var með öll tök á fyrstu hrinu frá byrjun til enda. Gestirnir frá Akureyri voru hinsvegar ekki lengi að hrista slæma byrjun af sér og tóku öll völd á leiknum með öruggum sigri í næstu þremur hrinum.
Afturelding – KA 1-3 (25-16, 15-25, 15-25, 12-25).
Stigahæst í leiknum var Julia Bonet Carreras leikmaður KA með 19 stig. Stigahæst í liði Aftureldingar var Tamara Kaposi með 13 stig.
Seinni leikur kvöldsins var viðureign Þróttar Reykjavíkur/BFH og Þróttar Fjarðarbyggðar. Þróttur Reykjavík/BFH höfðu þar betur með þægilegum sigri 3-0. Gestirnir frá Neskaupstað héldu vel í heimakonur í fyrstu hrinu en komust lítið áleiðis í næstu tveimur.
Þróttur Reykjavík/BFH – Þróttur Fjarðarbyggð 3-0 (25-21, 25-12, 25-19)
Stigaskor í leiknum liggur ekki fyrir.
KA lyfta sér á topp Unbroken deildar kvenna með 23 stig eftir 8 leiki, tveimur stigum á undan HK sem á leik til góða. Þróttur Reykjavík / BFH fer upp í þriðja sæti með 11 stig eftir 9 leiki.