Túnis vann heimamenn í opnunarleiknum

Fyrr í dag fór fram opnunarleikur heimsmeistaramóts karla þar sem að Filippseyjar mættu Túnis. Mótið fer fram á Filippseyjum og var því mikið um dýrðir á þessum fyrsta leik mótsins.

Filippseyjar 0-3 Túnis (13-25, 17-25, 23-25)

Fyrir leik voru heimamenn taldir ólíklegir til afreka en áttu þó fínustu skorpur í leik dagsins. Túnis vann fyrstu tvær hrinur leiksins auðveldlega en sú þriðja var í járnum. Að lokum vann Túnis með minnsta mun og sótti því 0-3 sigur í fyrsta leik. Bryan Bagunas skoraði 23 stig fyrir heimamenn en hjá Túnis var Oussama Ben Romdhane atkvæðamestur með 17 stig.

Túnis sótti sigur í fyrsta leik sínum á HM 2025 (Mynd: FIVB)

Eftir stuttan opnunardag mótsins fer allt á fullt um helgina en alls fara fram átta leikir á morgun, laugardag. Þar má helst nefna leik Þýskalands og Búlgaríu. Vert er að nefna að vegna tímamismunar hefst fyrsti leikur keppnisdagsins klukkan 2 eftir miðnætti.

Leikir morgundagsins – Laugardagur 13. september

  • Bandaríkin – Kólumbía 02:00
  • Kanada – Líbía 02:30
  • Kúba – Portúgal 05:30
  • Japan – Tyrkland 06:00
  • Þýskaland – Búlgaría 09:30
  • Holland – Katar 10:00
  • Slóvenía – Síle 13:00
  • Pólland – Rúmenía 13:30