Meistaradeild karla hélt áfram í þessari viku eftir stutt hlé. Leikið verður í keppninni fimm af næstu sex vikum og því nóg um að vera á næstunni.
Þriðju umferð Meistaradeildar karla lauk á fimmtudagskvöld en þar með er riðlakeppnin hálfnuð. Sigurlið hvers riðils fer beint inn í 8-liða úrslitin en 2. sæti hvers riðils fer í umspil um sæti þar. Þá bætist inn í umspilið það 3. sæti sem náði bestum árangri yfir alla riðlana talið. Hin fjögur liðin sem ná 3. sæti sinna riðla komast ekki áfram í 8-liða úrslitin eða umspilið en halda áfram í CEV Cup. Sú keppni er sú næststerkasta í Evrópu á eftir Meistaradeildinni.
Eftir þessa þriðju keppnisviku eru þrjú lið með fullt hús stiga en að sama skapi eru þrjú lið stigalaus. Riðlakeppnin heldur áfram í næstu viku og verður spennandi að sjá hvaða lið verða komin í góða stöðu fyrir lokasprettinn.
A-riðill
Ziraat Ankara vann óvæntan en öruggan 3-0 sigur gegn ítalska stórliðinu Trentino. Ankara eru því á toppi riðilsins með fullt hús stiga. Trentino er í öðru sætinu á undan ACH Ljubljana sem unnu sannfærandi sigur á Tours.
Ziraat Bankkasi Ankara 3-0 Itas Trentino (25-15, 33-31, 25-22). Nimir Abdel-Aziz skoraði 21 stig fyrir Ankara en Alessandro Michieletto skoraði 12 stig fyrir Trentino.
ACH Ljubljana 3-0 Tours VB (26-24, 25-19, 25-22). Tonček Stern skoraði 24 stig fyrir Ljubljana og Nik Mujanovic skoraði 16 stig fyrir Tours.
B-riðill
Lublin er á toppi B-riðils með 8 stig af 9 mögulegum en mikil barátta er um 2. sætið. Basil Dermaux átti stóran þátt í sigri Roeselare gegn Halkbank Ankara og aðeins munar einu stigi á 2. sæti og 4. sæti riðilsins.
Halkbank Ankara 2-3 Knack Roeselare (18-25, 25-21, 26-24, 15-25, 12-15). Tsvetan Sokolov var stigahæstur hjá Halkbank Anakra með 24 stig en Basil Dermaux átti ótrúlegan leik og skoraði 39 stig fyrir Knack Roeselare.
Galatasaray 1-3 LUK Lublin (26-24, 17-25, 19-25, 18-25). Stephen Maar og Can Koç skoruðu 15 stig hvor fyrir Galatasaray en Hilir Henno skoraði 20 stig fyrir Lublin.

C-riðill
Perugia vann öruggan sigur gegn Berlin en öllu meiri spenna var í leik Guaguas og Lvi Praha. Guaguas náði í sinn fyrsta sigur eftir langan og jafnan leik. Þeir blanda sér þar með í baráttuna um 2. sætið en Perugia stendur vel að vígi á toppnum.
Sir Sicoma Monini Perugia 3-0 Berlin Recycling Volleys (25-13, 25-23, 25-14). Wassim Ben Tara skoraði 18 stig fyrir Perugia en Nolan Flexen var stigahæstur hjá Berlin með 9 stig.
Guaguas Las Palmas 3-2 Lvi Praha (25-16, 21-25, 25-21, 19-25, 15-11). Francisco Souza skoraði 28 stig fyrir Guaguas en Lucas Conde skoraði 23 stig fyrir Praha.
D-riðill
Pólsku liðin Zawierce og Resovia ráða ríkjum í D-riðli en bæði lið unnu góða sigra í kvöld. Lüneburg eiga enn möguleika á að komast í útsláttarkeppnina en pólsku liðin virðast bera höfuð og herðar yfir hin tvö.
SVG Lüneburg 0-3 Aluron CMC Warta Zawierce (19-25, 21-25, 22-25). Axel Enlund skoraði 11 stig fyrir Lüneburg en Aaron Russell og Mateusz Bieniek skoruðu 15 stig hvor fyrir Zawierce.
Asseco Resovia 3-0 Sporting CP (25-9, 25-23, 25-19). Yacine Louati skoraði 19 stig fyrir Resovia en Lourenco Martins skoraði 12 stig fyrir Sporting.
E-riðill
Lube og Montpellier unnu sterka sigra í vikunni en Lube er á toppnum með fullt hús. Warszawa og Montpellier eru í harðri baráttu um 2. sætið en Leuven er án stiga á botni riðilsins.
Montpellier VB 3-0 Volley Haasrode Leuven (25-22, 25-18, 25-20). Ezequiel Palacios skoraði 14 stig fyrir Montpellier en Adrián Gómez skoraði 11 stig fyrir Leuven.
PGE Projekt Warszawa 0-3 Cucine Lube Civitanova (18-25, 21-25, 24-26). Bartosz Bednorz var stigahæstur hjá Warszawa með 9 stig en Aleksandar Nikolov skoraði 19 stig fyrir Lube.