Unbroken deild kvenna hélt áfram í dag þegar tveir leikir fóru fram, annar á Húsavík og hinn í Neskaupstað.
Tvíhöfðar fóru fram í báðum viðureignum dagsins þar sem kvennaleikirnir fóru af stað beint í kjölfar karlanna. Í báðum tilvikum var um að ræða topplið gegn liði neðar í deildinni en það kom ekki í veg fyrir að báðir leikir fóru í oddahrinu.
Völsungur mætti HK á Húsavík þar sem að heimakonur byrjuðu vel. Völsungur vann fyrstu hrinu eftir æsispennu en HK jafnaði eftir nokkuð jafna hrinu. Þriðja hrina var, líkt og sú fyrsta, afar spennandi og aftur vann Völsungur eftir upphækkun. Enn jafnaði HK en fjórða hrina var auðveld fyrir gestina. Í oddahrinunni var jafnt á öllum tölum framan af en Völsungur seig fram úr undir lokin. Völsungur vann hrinuna 15-13 og náði þar með í glæsilegan sigur á toppliði HK.
Fyrir austan mætti Þróttur Fjarðabyggð liði KA sem var í miklum eltingaleik við HK á toppi deildarinnar. Ekki byrjaði leikurinn vel fyrir heimakonur en KA gjörsigraði fyrstu hrinu. Þróttarar gerðu mun betur í næstu hrinum og unnu aðra hrinuna með minnsta mun. Þriðja hrina var einnig spennandi en KA vann og tók forystuna. Þróttur sneri taflinu aftur við í þeirri fjórðu og kom leiknum alla leið í oddahrinu. Þar reyndust norðankonur þó sterkari og unnu leikinn 2-3.
Eftir leiki dagsins eru KA og HK jöfn á toppnum með 25 stig eftir 9 leiki. Völsungur er í 3. sæti deildarinnar með 11 stig eftir 8 leiki en Þróttur R/BFH er einnig með 11 stig en þó eftir 9 leiki. Afturelding kemur þar á eftir með 8 stig eftir 9 leiki og á botninum situr Þróttur F. Þróttarar úr Neskaupstað sóttu sitt fyrsta stig í dag, í sínum tíunda leik á tímabilinu.
Á morgun fer einn leikur fram kvennamegin þar sem að Völsungur tekur á móti Aftureldingu en sá leikur hefst kl. 14:00.
Úrslit dagsins í Unbroken deild kvenna – Laugardagur 22. nóvember
Völsungur 3-2 HK (29-27, 21-25, 30-28, 13-25, 15-13)
Þróttur Fjarðabyggð 2-3 KA (14-25, 25-23, 22-25, 25-21, 9-15)