Titilvörn KA hófst með sigri fyrir austan

Mynd: Mummi Lú

Einn leikur fór fram í Kjörísbikar kvenna í kvöld þegar Þróttur Fjarðabyggð tók á móti KA í 8-liða úrslitum. Fyrirfram var búist við öruggum sigri KA enda liðin á mjög ólíkum stað í Unbroken deildinni.

KA hefur átt gott tímabil en HK og KA hafa stungið önnur lið af í Unbroken deild kvenna. Þróttur Fjarðabyggð hefur hins vegar átt erfitt uppdráttar og situr á botni deildarinnar með 1 stig eftir 14 leiki. Í kvöld var þó komið að bikarkeppninni og staðan í deildinni öllu óviðkomandi.

KA byrjaði leik kvöldsins vel og stakk af snemma í fyrstu hrinu leiksins. Norðankonur áttu ekki í vandræðum með að klára hrinuna og unnu 18-25 sigur. Þróttarar tóku við sér í annarri hrinu og í þetta skiptið leiddu heimakonur framan af hrinunni. KA jafnaði leikinn um miðja hrinu og virtust ætla að taka yfir leikinn en Þróttur átti frábæran kafla undir lok hrinunnar og vann sannfærandi 25-19 sigur til að jafna leikinn 1-1.

Enn var jafnræði með liðunum í þriðju hrinu en KA var skrefi á undan. Gestirnir náðu þó ekki að stinga heimakonur af fyrr en undir lokin þegar KA skoraði 5 stig í röð. Síðustu stigin voru aðeins formsatriði og KA tók 1-2 forystu. Gestirnir virtust komnir á gott ról og leiddu strax 0-5 í upphafi fjórðu hrinu. Þær bættu í forystuna um miðja hrinu og var sigurinn aldrei í hættu. KA vann hrinuna 15-25 og leikinn þar með 1-3.

KA er því komið í undanúrslit Kjörísbikars kvenna en undanúrslit kvenna fara fram fimmtudaginn 12. mars. Leikið verður til úrslita laugardaginn 14. mars. Einn leikur fer fram á morgun en þar heimsækir HK lið UMFG (Grundarfjörður). Seinni tveir leikirnir í 8-liða úrslitum kvenna fara svo fram næstu helgi.