Þróttur Reykjavík og KA með mikilvæg 3 stig í kvöld

Mynd: Blakdeild Þróttar

Tveir leikir fóru fram í Unbroken deild karla í kvöld.

Völsungur tók á móti KA á Húsavík en KA var fyrir leikinn með 25 stig í 4.sæti deildarinnar. Völsungur var hinsvegar í 7. og næst neðsta sæti deildarinnar með 7 stig og gat með sigri komist upp fyrir Þrótt Fjarðarbyggð í 6.sæti.

Leikurinn var hnífjafn en allar hrinur leiksins enduðu með sigri KA 25-21. Það var aðeins í þriðju hrinu sem Völsungur náði tökum á KA liðinu og voru heimamenn klaufar að missa frá sér hrinuna. KA liðið náði sér hinsvegar í mikilvæg 3 stig í baráttunni um efstu 4 sætin í deildinni.

Seinni leikur kvöldsins var viðureign Þróttar Reykjavíkur og Aftureldingar en bæði lið gátu náð toppsætinu með sigri. Þróttur Reykjavík byrjaði leikinn af miklum krafti og eftir jafna byrjun í fyrstu hrinu þá stigu heimamenn á bensíngjöfina og unnu hrinuna mjög sannfærandi 25-12.

Það virtist svo ætla að stefna í sömu útkomuna í annarri hrinu en Þróttur komst í 20-11 þegar munurinn var sem mestur. Afturelding nýtti þá tækifærið og gerði nokkrar breytingar á liðinu og skilaði það góðum árangri. Ferskar lappir komnar inná og voru þeir hársbreidd frá því að snúa hrinunni sér í vil. Þróttur tók þá leikhlé í stöðunni 22-19 og stilltu saman strengi, sem reyndist nóg því Þróttur fór að lokum með sigur 25-21.

Þróttur kláraði svo leikinn með sigri í þriðju hrinu 25-21 og mikilvæg 3 stig í hús.

Þróttur Reykjavík fer því í jólafrí á toppi deildarinnar með 30 stig. Stigi meira en Hamar og Afturelding sem eru jöfn í 2.-.3 sæti með 29 stig, Hamar á þó leik til góða.

Staðan í Unbroken deild karla