Þróttur Fjarðarbyggð og HK skiptu með sér sigrum

Mynd: Þróttur Fjarðabyggð

Tveir leikir fóru fram í Unbroken-deild karla og kvenna í gær þegar Þróttur Fjarðabyggð tók á móti HK í Neskaupstað.

Fjörið hófst með viðureign liðanna í Unbroken-deild kvenna. HK byrjaði af krafti og vann fyrstu hrinuna nokkuð örugglega, 25–16. Allt virtist stefna í aðra þægilega hrinu fyrir HK þegar liðið náði 16–11 forystu. Heimakonur tóku hins vegar við sér og jöfnuðu í 16–16. Eftir spennandi lokakafla höfðu þær sigur, 25–23.

Þriðja hrinan var einnig æsispennandi. HK virtist ætla að ná að slíta sig frá, en heimakonur börðust enn á ný fyrir hverju stigi. Að lokum vann HK hrinuna 26–24. Fjórða hrinan endaði svo með öruggum sigri HK, 25–15, og þar með var 3–1 sigur liðsins í höfn.

Að kvennaleiknum loknum tók við leikur karlaliða félaganna. Hann endaði með öruggum 3–0 sigri Þróttar Fjarðabyggðar (25–20, 25–14, 25–20).

Lið HK hefur tekið töluverðum breytingum frá síðasta tímabili. Máni Matthíasson, Markús Freyr Arnarsson, Riccardo Meucci og Emil Diatlovic hafa farið frá félaginu, svo einhverjir séu nefndir. Hjá Þrótti er Þórarinn Örn Jónsson aftur kominn á heimaslóðir.

HK átti í töluverðum vandræðum með öflugt lið Þróttar en töluverður munur var á liðunum. HK átti í vandræðum með öflugan sóknarleik Þróttar ásamt því að gera allt of mikið af mistökum. Þægilegur sigur Þróttar sem byrja tímabilið af krafti.