Einn leikur fór fram í Unbrokendeild karla í dag þegar Þróttur Fjarðarbyggð tók á móti Vestra.
Liðin eru í 5. og 6. sæti deildarinnar og á hvorugt liðið möguleika á að komast í úrslitakeppnina í ár. Þróttur Fjarðarbyggð er hinsvegar á leið í undanúrslit í Kjörísbikar karla og því mikilvægt fyrir liðið að halda vel á spöðunum þangað til.
Þróttur Fjarðarbyggð spilaði í dag án fyrirliða liðsins Raul Garcia Asensio sem hefur verið einn öflugasti leikmaður deildarinnar í vetur, með 283 stig í 14 leikjum. Það virtist hinsvegar ekki veikja liðið mikið en Þróttur náði sér í góðan sigur í dag 3-0. Fyrsta hrina leiksins var hvað jöfnust en henni lauk með sigri Þróttar 25-23. Þróttur hafði svo nokkuð góð tök á næstu tveimur hrinum sem enduðu með sigri 25-18 og 25-19.
Stigahæstur í leiknum í dag var Sverrir Bjarki Svavarsson leikmaður Vestra með 16 stig. Stigahæstu í liði Þróttar Fjarðarbyggðar var Haukur Eron Heimisson með 13 stig.
Þróttur Fjarðarbyggð – Vestri 3-0 (25-23, 25-18, 25-19)
Vestri situr hinsvegar ennþá í 5.sæti deildarinnar með 19 stig eftir 17 leiki en Þróttur er þremur stigum á eftir í 6.sæti með 16 stig eftir 16 leiki.
