Kjörísbikarinn hófst í kvöld þegar fyrsti leikurinn fór fram karlamegin. Þar mættust Leiknir Reykjavík og Þróttur Fjarðabyggð í fyrstu umferð keppninnar.
Lið Leiknis leikur í 1. deild þetta tímabilið en þar hefur liðið unnið alla 5 leiki sína og aðeins tapað einni hrinu. Þróttur Fjarðabyggð leikur í Unbroken deildinni og situr þar í sjöunda og næstneðsta sætinu. Fyrirfram var erfitt að segja til um hvernig liðin myndu mæta til leiks og því spennandi að sjá hvort Leiknismenn gætu staðið í úrvalsdeildarliði Þróttar F. Fyrsta hrina var svo sannarlega jöfn og náði Leiknir forystunni í stöðunni 21-20. Þá tóku gestirnir hins vegar völdin og unnu hrinuna.
Næstu tvær hrinur voru ekki eins jafnar og sú fyrsta en í báðum tilvikum jókst forysta Þróttara smám saman og lauk hrinunum báðum með þægilegum sigri Þróttar F. Gestirnir frá Neskaupstað unnu leikinn því 0-3 og tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum Kjörísbikarsins. Leiknir hefur þá lokið keppni í bikarnum að þessu sinni.
Leiknir Reykjavík 0-3 Þróttur Fjarðabyggð (22-25, 16-25, 17-25)
Einn leikur er framundan í þessari fyrstu umferð Kjörísbikars karla en þar mætast KA Splæsir og Vestri á Akureyri. Sá leikur fer fram laugardaginn 13. desember. Leikið verður í 8-liða úrslitum karla og kvenna í lok janúar 2026 og úrslitahelgin verður dagana 12.-14. mars.