Kjörísbikar karla hófst að nýju í kvöld þegar 8-liða úrslitin fóru af stað með einum leik. Þróttur Fjarðabyggð tók á móti HK í Neskaupstað og búist var við hörkuleik fyrir austan.
Þessi sömu lið mættust einnig í Unbroken deildinni fyrir nokkrum dögum en þar hafði Þróttur Fjarðabyggð betur í oddahrinu. Þróttarar mættu til leiks með nýjan leikmann en Carlos Jiménez Gallego kom til félagsins frá þýska liðinu Dachau. Þar lék hann í efstu deild Þýskalands og kemur til með að styrkja Þrótt Fjarðabyggð töluvert fyrir seinni hluta tímabilsins. Til gamans má geta að systir hans, Maria, leikur með kvennaliði félagsins.
Heimamenn byrjuðu leik kvöldsins mun betur og náðu fljótt þægilegu forskoti. Spennan varð ekki mikil í fyrstu hrinunni sem Þróttur Fjarðabyggð vann 25-15. Meira jafnræði var með liðunum í annarri hrinunni en Þróttur hafði þó nauma forystu út hrinuna. Munurinn jókst svo eftir miðbik hrinu og Þróttur náði 2-0 forystu með 25-19 sigri.
Aftur var nokkuð jafnræði með liðunum í þriðju hrinu en þegar leið á hrinuna tóku heimamenn forystuna. Þróttarar héldu þægilegu forskoti stærstan hluta hrinunnar og unnu að lokum þægilegan sigur, 25-17. Leiknum lauk þar með 3-0 fyrir heimamenn.
Þróttur Fjarðabyggð er því fyrsta liðið til að tryggja sér sæti á úrslitahelgi Kjörísbikarsins en undanúrslit karla fara fram föstudaginn 13. mars. Úrslitaleikir karla og kvenna fara fram laugardaginn 14. mars.