Þróttur F vann HK öðru sinni

Mynd: Sigga Þrúða

Unbroken deild karla hélt áfram í dag með einum leik. Þróttur Fjarðabyggð og HK mættust þar en þessi sömu lið mættust einnig í gær í Kjörísbikarnum.

Leik gærdagsins lauk með nokkuð öruggum 3-0 sigri Þróttar Fjarðabyggð en í kvöld var mikið jafnræði með liðunum í fyrstu hrinu. Þróttur byrjaði að vísu mjög vel og leiddi 6-1 en um miðja hrinu var jafnt á öllum tölum. HK tók forystuna í seinni hluta hrinunnar og liðin héldu áfram að skiptast á stigum en Þróttur gerði betur undir lokin og vann hrinuna 25-22.

Önnur hrinan var einnig jöfn framan af en Þróttur F náði afgerandi forystu um miðja hrinu. Þeir kláruðu hana örugglega 25-16 og leiddu 2-0. Enn og aftur var þriðja hrina jöfn til að byrja með en Þróttur var skrefi á undan stærstan hluta hennar. HK minnkaði muninn í eitt stig áður en Þróttur skellti í lás og skoraði fimm síðustu stigin. Þróttur vann hrinuna 25-19 og leikinn þar með 3-0. Þróttur F fer þá upp í 13 stig en HK er með 5 stig.

Raul Garcia Asensio var stigahæstur í liði Þróttar með 15 stig en Haukur Eron Heimisson kom næstur með 13 stig. Michal Jan Potempa skoraði 9 stig fyrir HK og Fjölnir Logi Halldórsson skoraði 7 stig.

Keppni heldur áfram næstu helgi en þá mætast Hamar og KA í stórleik. Hamar er sem stendur í efsta sæti deildarinnar með 35 stig eftir 15 leiki en KA er í 4. sæti með 33 stig eftir 14 leiki. Baráttan er mikil en Þróttur Reykjavík og Afturelding eru einnig í þessum þétta pakka.