Þróttur Reykjavík hélt á dögunum sína uppskeruhátíð vegna ársins 2025. Tækifærið var nýtt til að veita nokkrum Þrótturum viðurkenningar fyrir sitt framlag til félagsins.
Þrír blakarar voru sæmdir heiðursverðlaunum og teljast nú heiðursfélagar Þróttar Reykjavíkur. Þetta eru þeir Gunnar Árnason, Jason Ívarsson og Leifur Harðarson en allir léku þeir með sigursælum liðum Þróttar auk þess að sinna ýmsum störfum á vegum Þróttar R og Blaksambands Íslands. Þá var Hrafnhildur Brynjólfsdóttir sæmd gullmerki Þróttar. Ítarlega er fjallað um störf þeirra í tilkynningu frá Þrótti Reykjavík og má nálgast þau skemmtilegu skrif með því að smella hér.
