Þrjú ítölsk lið komin áfram í Meistaradeildinni

Meistaradeild Evrópu hélt áfram í vikunni þegar næstsíðasta umferð riðlakeppninnar fór fram. Það verður mikið undir í lokaumferðinni þar sem enn eru mörg sæti laus í útsláttarkeppninni.

Liðin í Meistaradeildinni eiga aðeins einn leik eftir í riðlakeppninni en umferð vikunnar bauð upp á mikla skemmtun og einnig óvænt úrslit. Nokkur lið hafa tryggt sér efsta sæti síns riðils en þau lið sem enda í 2. sæti fara einnig í útsláttarkeppnina. Þá fylgir það lið sem nær bestum árangri þeirra sem enda í 3. sæti. Því er að ýmsu að keppa í öllum riðlum keppninnar.

Síðasta umferðin fer fram í næstu viku og verða allir leikir spilaðir sama kvöldið. Fyrstu leikir hefjast kl. 17:00 og þeir síðustu 19:30. Það verður því langt og æsispennandi kvöld miðvikudaginn 18. febrúar. Hægt er að fylgjast með leikjunum á EuroVolley TV en þar fæst áskrift gegn vægu verði.

A-riðill

Tyrkneska stórliðið Ziraat Bankasi Ankara vann Tours í hörkuleik og tryggði sér þar með efsta sæti A-riðils. Trentino er einnig í fínum málum þar sem að hin tvö lið riðilsins hafa varla fengið stig í keppninni. Þeir munu því fylgja Ankara áfram í útsláttarkeppnina.

Tours VB 1-3 Ziraat Bankasi Ankara (23-25, 25-21, 20-25, 21-25)

ACH Ljubljana 1-3 Trentino Volley (21-25, 17-25, 25-22, 23-25)

B-riðill

Stuðningsmenn Galatasaray létu vel til sín taka á útileik gegn Roeselare. Heimamenn í Knack Roeselare unnu leikinn eftir spennandi oddahrinu og urðu mikil læti hjá Tyrkjunum á áhorfendapöllunum. Líklegt er að hegðun þeirra dragi dilk á eftir sér. Halkbank náði í stig gegn toppliði Lublin eftir æsispennandi viðureign. Lublin er búið að tryggja sér efsta sætið en Roeselare og Galatasaray berjast um sæti í útsláttarkeppninni.

Knack Roeselare 3-2 Galatasaray (25-22, 21-25, 26-24, 23-25, 15-10)

Halkbank Ankara 2-3 LUK Lublin (26-24, 16-25, 24-26, 26-24, 11-15)

C-riðill

Perugia tryggði sér efsta sæti C-riðils með þægilegum sigri á Lvi Praha en Guaguas náðu í sætan sigur gegn Berlin. Tvö síðarnefndu liðin há því baráttu um 2. sæti riðilsins og öruggt sæti í útsláttarkeppninni.

Lvi Praha 0-3 Sir Sicoma Monini Perugia (13-25, 18-25, 17-25)

Guaguas Las Palmas 3-1 Berlin Recycling Volleys (22-25, 30-28, 25-21, 26-24)

D-riðill

Pólsku liðin Resovia og Zawierce áttu hörkuleik en eru nú bæði í góðum málum fyrir lokaumferðina. Lüneburg gat tryggt sér oddahrinu þegar liðið leiddi 19-24 í fjórðu hrinu en glutraði niður forystunni og tapaði 1-3. Þar með þurfa þeir að vinna Zawierce í næsta leik auk þess að treysta á úrslit annarra liða til að komast í útsláttarkeppnina.

Sporting CP 3-1 SVG Lüneburg (25-21, 25-19, 16-25, 31-29)

Asseco Resovia 3-0 Aluron CMC Warta Zawierce (25-21, 25-23, 25-22)

E-riðill

Montpellier vann óvæntan 3-2 sigur gegn toppliði Lube og á því enn möguleika á 2. sæti riðilsins. Warszawa hefði getað komið sér í afgerandi stöðu en vann nauman 3-2 sigur gegn botnliði Leuven. Lube er búið að tryggja efsta sæti riðilsins og hefur að litlu að keppa í síðasta leik sínum.

Montpellier 3-2 Cucine Lube Civitanova (29-27, 25-22, 14-25, 18-25, 16-14)

Volley Haasrode Leuven 2-3 PGE Projekt Warszawa (18-25, 25-22, 25-23, 19-25, 7-15)