Það var nóg um að vera í Unbroken deild karla í dag þegar þrír leikir fóru fram. Tveir leikjanna fóru fram á höfuðborgarsvæðinu en á Akureyri var endurtekið efni frá Meistarakeppni BLÍ á dögunum.
Fyrsti leikur dagsins fór fram í Fagralundi en þar lék HK heimaleiki sínum fyrir örfáum árum. Lið HK tók á móti Vestra en heimamenn virtust ekki vel stilltir til að byrja með og náði Vestri 2-0 forystu á sannfærandi hátt. HK lék mun betur í þriðju hrinu leiksins sem þeir unnu eftir jafna hrinu en Vestri vann þá fjórðu sem var einnig nokkuð spennandi. Vestri vann því 1-3 sigur en þetta var fyrsti leikur þeirra á tímabilinu.
Næst var komið að leik Þróttar og Þróttar. Þróttur Reykjavík tók þar á móti Þrótti Fjarðabyggð en mikið jafnræði var með liðunum í fyrstu hrinu. Heimamenn unnu hana eftir mikla baráttu og unnu svo næstu hrinu nokkuð auðveldlega. Þegar þeir virtust vera að taka yfir leikinn kviknaði aftur á gestunum að austan. Þróttur Fjarðabyggð vann nauman sigur í þriðju hrinu en öruggan sigur í þeirri fjórðu og því réðust úrslitin í oddahrinu. Þar reyndust gestirnir sterkari og unnu glæsilega 2-3 sigur í Laugardalshöll. Þeir hafa því unnið tvo fyrstu leiki sína í deildinni en Þróttur R hefur unnið einn af sínum tveimur leikjum.
Á Akureyri tók KA á móti Hamri en liðin höfðu nýlega mæst í Meistarakeppni BLÍ. Þar hafði Hamar betur eftir maraþonleik og það voru Hvergerðingar sem byrjuðu leik kvöldsins betur. Þeir unnu nauman sigur í fyrstu hrinu en höfðu nokkuð góð tök á leiknum í annarri hrinunni. Hana unnu þeir sannfærandi og náðu 0-2 forystu. Þriðja hrina var sveiflukennd en KA náði ekki að knýja fram fleiri hrinu því Hamar vann eftir upphækkun. Hamar vann leikinn því 0-3 og er með fullt hús stiga. KA er hins vegar án stiga eftir tvo fyrstu leiki sína.
Á morgun fara einnig fram þrír leikir þegar viðureignir dagsins verða endurteknar. Stöðutöflu, leikjaplan og margt fleira um Unbroken deild karla má finna með því að smella hér.
Úrslit dagsins í Unbroken deild karla
HK 1-3 Vestri (17-25, 21-25, 25-21, 21-25)
Þróttur Reykjavík 2-3 Þróttur Fjarðabyggð (25-21, 25-17, 23-25, 16-25, 13-15)
KA 0-3 Hamar (23-25, 18-25, 25-27)