Mikið var um að vera í Unbroken deild karla í dag þegar þrír leikir fóru fram. Þrjú af toppliðum deildarinnar freistuðu þess að ná toppsætinu af Hamri eða þjarma vel að þeim.
Topplið Hamars lék ekki í dag en Afturelding, KA og Þróttur Reykjavík áttu öll krefjandi leiki fyrir höndum. Þessi þrjú lið eru í toppbaráttunni ásamt Hvergerðingum þegar liðin eiga örfáa leiki eftir. Afturelding reið á vaðið þegar liðið heimsótti Vestra á Ísafirði. Afturelding hafði naumt forskot í fyrstu hrinu en leiddi þó allan tímann. Eftir sigur í fyrstu hrinu völtuðu gestirnir yfir Ísfirðinga í annarri hrinu áður en þeir tryggðu 0-3 sigur með því að vinna þriðju hrinu með minnsta mun.
Á Akureyri tók KA á móti Þrótti Fjarðabyggð þar sem að gestirnir byrjuðu mun betur. Þeir náðu 6 stiga forskoti um miðja hrinuna en þá komst KA á skrið. Heimamenn komust yfir á lokakafla hrinunnar og unnu naumlega. Eftirleikurinn var auðveldur en í bæði annarri og þriðju hrinu vann KA auðvelda sigra. Þeir náðu því í 3-0 sigur á heimavelli með sannfærandi hætti.
Lokaleikur dagsins var viðureign Völsungs og Þróttar Reykjavíkur á Húsavík. Völsungur byrjaði vel en Þróttarar áttu ekki í vandræðum eftir brösuga byrjun. Svipað var uppi á teningnum í annarri hrinu, Völsungur byrjaði vel en Þróttur tók forskot um miðja hrinu. Litlu munaði að heimamenn kæmu sér inn í leikinn en endurkoman dugði ekki til og Þróttur vann hrinuna með minnsta mun. Þróttur vann svo auðveldan sigur í þriðju hrinu og vann 3-0 sigur, líkt og hin tvö liðin í toppbaráttunni.
Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – Laugardagur 7. febrúar
Vestri 0-3 Afturelding (21-25, 12-25, 23-25)
KA 3-0 Þróttur Fjarðabyggð (25-23, 25-16, 25-16)
Völsungur 0-3 Þróttur Reykjavík (17-25, 23-25, 15-25)

Eftir leiki dagsins er Þróttur Reykjavík í toppsætinu og KA stigi á eftir Þrótturum í 2. sætinu. Hamar og Afturelding koma beint í kjölfarið en liðin eiga mismarga leiki eftir í deildarkeppninni. Þegar stigafjöldi og spilaðir leikir eru skoðuð stendur Hamar best að vígi en afar litlu munar á liðunum. Deildin heldur áfram á miðvikudag þegar HK tekur á móti Hamri en stutt er í að Afturelding og Þróttur Reykjavík mætist í stórleik. Sá leikur fer fram miðvikudaginn 18. febrúar.
Leikjaplan deildarinnar má finna með því að smella hér.