Þjóðverjar unnu heimamenn í Búlgaríu

Evrópumót karla í blaki hélt áfram í dag þegar 16-liða úrslitin hófust. Tveir leikir fóru fram en gríðarleg spenna var í stórleik dagsins.

Keppnisdagurinn hófst á leik Póllands og Lettlands en þar mættust Davíð og Golíat. Pólland er talið sigurstranglegasta lið mótsins en Lettland gerði frábærlega með því að komast í 16-liða úrslitin. Pólland var mun sterkari aðilinn í leiknum og vann allar þrjár hrinurnar sannfærandi. Þá var komið að seinni leik dagsins og þeim sem var beðið eftir. Búlgaría og Þýskaland mættust á heimavelli þeirra búlgörsku í Sofia. Leikurinn var æsispennandi og létu tólf þúsund áhorfendur vel í sér heyra allan leikinn.

Búlgaría byrjaði leikinn betur en þrátt fyrir nokkuð jafnræði með liðunum náði Búlgaría 2-0 forystu. Þýskaland sneri dæminu við og vann næstu tvær en fjórða hrinan vannst með minnsta mun, 23-25. Allt var í járnum í oddahrinunni og skiptust liðin á að skora. Eftir æsilegan lokakafla vann Þýskaland og mætir þá Póllandi í 8-liða úrslitum mótsins. Búlgaría er hins vegar úr leik líkt og Lettland.

Á morgun fara fjórir leikir fram sem ættu allir að bjóða upp á nokkra spennu. Frakkland er mun sigurstranglegra en Portúgal en að þeim leik undanskildum er erfitt að spá í spilin. Ljóst er þó að Danmerkur bíður erfitt verkefni þegar liðið mætir Ítalíu á þeirra heimavelli.

Úrslit dagsins – Laugardagur 19. september

Pólland 3-0 Lettland (25-17, 25-16, 25-16). Tomasz Fornal skoraði 19 stig fyrir Pólland en Kristers Landzāns skoraði 11 stig fyrir Lettland.

Þýskaland 3-2 Búlgaría (21-25, 21-25, 25-19, 25-23, 15-12). Erik Röhrs skoraði 20 stig fyrir Þýskaland en Aleksandar Nikolov skoraði 23 stig fyrir Búlgaríu.

Leikir morgundagsins – Sunnudagur 20. september

13:00 Úkraína – Rúmenía

14:00 Finnland – Grikkland

16:00 Frakkland – Portúgal

19:05 Ítalía – Danmörk