Þjóðverjar unnu Belga eftir æsispennu

Evrópumót kvenna hélt áfram í gær þegar keppni lauk í 16-liða úrslitum. Af tveimur leikjum dagsins fór annar alla leið í oddahrinu.

Aðeins tveir leikir voru á dagskrá í gær en dagurinn hófst á hörkuleik Belgíu og Þýskalands. Þær belgísku byrjuðu leikinn vel og unnu fyrstu hrinu eftir nokkuð jafnræði með liðunum. Þýskaland vann næstu tvær hrinur og virtist vera að sigla heim sigri en Belgía náði að kreista fram oddahrinu með 27-25 sigri. Þær þýsku reyndust þó sterkari í oddahrinunni og unnu hana sannfærandi.

Tyrkland mætti Azerbaijan í seinni leik gærdagsins en síðarnefnda liðið hafði komið töluvert á óvart með spilamennsku sinni til þessa. Tyrkland er hins vegar með ógnarsterkt lið og spá margir þeim á verðlaunapall. Þær leika enn fremur á heimavelli í Istanbul og standa þar vel að vígi. Tyrkland spilaði vel í gær og átti alls ekki í vandræðum með Azerbaijan. Tyrkneska liðið vann auðveldan 3-0 sigur og mætir því Þýskalandi í 8-liða úrslitum keppninnar.

Í dag fara tveir leikir fram í 8-liða úrslitunum. Fyrst mætir Serbía liði Grikklands en þær grísku komu á óvart og unnu Frakkland á sannfærandi hátt. Það væri þó enn óvæntara ef þær skyldu vinna serbneska liðið sem er afar sterkt. Seinni leikur dagsins er viðureign Ítalíu og Svíþjóðar en ítalska liðið vann það sænska í riðlakeppninni. Isabelle Haak þarf að eiga enn einn stórleikinn ef Svíþjóð ætlar að eiga roð í stórlið Ítalíu.

Úrslit gærdagsins – 1. september

Belgía 2-3 Þýskaland (25-20, 21-25, 20-25, 27-25, 8-15). Leana Grozer skoraði 28 stig fyrir Þýskaland.

Tyrkland 3-0 Azerbaijan (25-14, 25-16, 25-22). Melissa Vargas skoraði 16 stig fyrir Tyrkland.

Leikir dagsins – 2. september

14:00 Serbía – Grikkland

17:00 Ítalía – Svíþjóð