Tékkland setti Serba í erfiða stöðu

Þriðji leikdagur HM karla var áhugaverður að mörgu leyti. Sjö leikir fóru fram og byrjaði dagurinn á óvæntum og æsispennandi leik.

Eftir langa bið fengu síðustu liðin að spreyta sig í dag en nú hafa öll lið mótsins spilað sinn fyrsta leik. Dagurinn hófst á leik Argentínu og Finnlands þar sem Finnar unnu fyrstu tvær hrinurnar nokkuð sannfærandi. Argentína var mun sigurstranglegri í leiknum og sneri taflinu við. Argentína vann 3-2 sigur en Finnar náðu í dýrmætt stig. Sömuleiðis urðu nokkuð óvænt úrslit í leik Íran og Egyptalands þar sem að Egyptar unnu 1-3 sigur.

Úkraína átti erfitt uppdráttar gegn Belgíu þar sem að Belgar fóru með öruggan 3-0 sigur af hólmi. Það sama mátti segja um Serba sem töpuðu sömuleiðis 0-3 gegn Tékklandi. Frakkar og Ítalir unnu auðvelda sigra gegn Suður-Kóreu og Alsír en Brasilía mætti Kína í æsispennandi leik. Allar hrinur leiksins voru mjög jafnar en Brasilía kláraði dæmið með 3-1 sigri.

Argentína 3-2 Finnland (19-25, 18-25, 25-22, 25-22, 15-11). Pablo Kukartsev skoraði 20 stig og Luciano Palonsky bætti við 19 stigum fyrir Argentínu. Í liði Finnlands var Joonas Jokela stigahæstur með 26 stig.

Íran 1-3 Egyptaland (17-25, 25-16, 23-25, 20-25). Ali Hajipour skoraði 17 stig fyrir Íran. Ahmed Safik var stigahæstur hjá Egyptalandi með 18 stig og Abdelrahman Elhossiny bætti við 17 stigum.

Úkraína 0-3 Belgía (16-25, 17-25, 22-25). Vasyl Tupchii skoraði 14 stig fyrir Úkraínu en Ferre Reggers átti stórleik og skoraði 23 stig fyrir Belgíu.

Belgía átti frábæran leik og vann Úkraínu (Mynd: FIVB)

Serbía 0-3 Tékkland (22-25, 23-25, 20-25). Pavle Peric skoraði 14 stig fyrir Serbíu og Patrik Indra var sömuleiðis með 14 stig fyrir Tékkland.

Frakkland 3-0 Suður-Kórea (25-12, 25-18, 25-16). Jean Patry var stigahæstur hjá Frakklandi með 16 stig en hjá Suður-Kóreu var Subong Heo atkvæðamestur með 9 stig.

Brasilía 3-1 Kína (19-25, 25-23, 25-22, 25-21). Alls skoruðu 5 leikmenn Brasilíu 10 stig eða meira en Arthur var stigahæstur þeirra með 17 stig. Stigaskor hjá Kína dreifðist einnig vel en Shikun Peng skoraði 12 stig.

Ítalía 3-0 Alsír (25-13, 25-22, 25-17). Alessandro Michieletto skoraði 15 stig fyrir Ítalíu en hjá Alsír var Sidi Mohamed Dour stigahæstur með 11 stig.

Ítalir léku vel og áttu ekki í vandræðum með lið Alsír í dag (Mynd: FIVB)

Þar með hafa öll lið spilað einn leik á mótinu og í nótt hefst önnur umferð riðlakeppninnar. Strax á morgun gætu línur farið að skýrast í einhverjum riðlanna en flestra augu verða á leik Slóveníu gegn Búlgaríu. Síle mun án efa sitja eftir í þeim riðli en Þýskaland, Slóvenía og Búlgaría berjast um sætin tvö í 16-liða úrslitunum. Þá mætast Bandaríkin og Portúgal í áhugaverðum leik.

Leikir morgundagsins – Mánudagur 15. september

  • Kúba – Kólumbía 02:00
  • Tyrkland – Líbía 02:30
  • Þýskaland – Síle 05:30
  • Japan – Kanada 06:00
  • Slóvenía – Búlgaría 09:30
  • Holland – Rúmenía 10:00
  • Bandaríkin – Portúgal 13:00
  • Pólland – Katar 13:30